pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur fyrir að flytja okkur þetta nefndarálit og lýsa í stuttu máli innihaldi þessa frumvarps til breytinga á lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Það vekur svolitla athygli að það er ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem leggur þetta fram, fulltrúi þess flokks í ríkisstjórninni sem mest talar um að báknið skuli burt, að rifa skuli seglin og ríkið dragi úr afskiptum sínum. En nú er stofnuð enn ein stofnunin, Ferðatryggingasjóður, sem er sjálfseignarstofnun, stofnun sem á sig sjálf. Þetta er umdeilt atriði og á sér langa sögu.
Mig langar að spyrja hv. þingmann aðeins um þetta atriði, um það rekstrarform að vera sjálfseignarstofnun. Var að einhverju leyti fjallað um hvort þetta ætti endilega að vera sjálfseignarstofnun, einkahlutafélag eða opinbert hlutafélag eða bara hluti af ríkisrekstrinum? Það kemur m.a. fram í greinargerð að Hagstofa Íslands hefur nýlega lokið við heildarendurskoðun á framsetningu þjóðhagsreiknings og þar er m.a. tekið á þessu með flokkun stofnanaeininga, stofnana innan bæði ríkis og sveitarfélaga, og þar kunni að vera að stofnanir af þessu tagi falli inn undir fjárlög og ríkisreikning. Hvað vinnst með því að gera þetta að sjálfseignarstofnun?