pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.
Herra forseti. Það er auðvitað gerð grein fyrir því í frumvarpinu sjálfu hvers vegna þessi leið var farin og það rökstutt. Fram kom í kynningu ráðuneytisins að þetta væri að norrænni fyrirmynd og að vel hefði tekist til þar sem þetta hafi verið gert. Það kom í ljós þegar öll ferðaþjónusta fór á hliðina í kjölfar Covid að tryggingar voru kannski ekki eins burðugar og við hefðum viljað hafa þær miðað við það tryggingakerfi sem var og að sú samtrygging sem ferðaskrifstofur greiða inn í og bera þá ábyrgð á hafi komið vel út í norrænum löndum eins og í Danmörku, en fyrirmyndin kemur þaðan, og að þar hafi verið mikil ánægja með getu slíks tryggingasjóðs til að tryggja neytendum næga tryggingavernd. Ég get svo sem ekki farið dýpra í það en þetta; það hafi verið vegna reynslu okkar norrænu vinaþjóða af sams konar sjóði sem sú leið var farin af hálfu ráðuneytisins að láta gera frumvarp sem stofnaði Ferðatryggingasjóð, sem er sjálfseignarstofnun.