151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.

752. mál
[22:32]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég get nú ekki lýst því yfir að þetta frumvarp tryggi ánægjulegri pakkaferðir hjá fólki en ef fyrra tryggingakerfi hefði verið áfram við lýði. Mér finnst þetta lýsa sér best í þeim umsögnum sem komu frá Ferðamálastofu, Neytendasamtökunum, Ríkisendurskoðun, Samtökum ferðaþjónustunnar og Skattinum, auk minnisblaðs frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, en þar var almennt mikil ánægja með efni frumvarpsins. Mér finnst það vera gott heilbrigðisvottorð fyrir þá vegferð að fara þá leið að koma á fót Ferðatryggingasjóði sem lækkar vissulega aðeins fjárbindingu þeirra aðila sem þurfa að leggja til fjármagn í stofnfé, en tryggir jafnframt öruggari neytendavernd. Sjóðurinn, eins og ég skil hann, á að vera sjálfbær. Þetta fyrirkomulag hefur komið vel út og virkaði t.d. vel í Danmörku þegar ferðaþjónustan lagðist á hliðina þar, eins og hjá okkur. Fyrirmyndin kemur þaðan. Ég hef fulla trú á að þessi sjóður eigi eftir að standa undir merkjum, tryggja okkur sem neytendur og vera þannig umbúnaður að ferðaskrifstofur þurfi að leggja sitt framlag þarna inn sem dugi til að veita tryggingavernd ef á reynir.