151. löggjafarþing — 110. fundur,  9. júní 2021.

raforkulög og stofnun Landsnets hf.

628. mál
[13:38]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Þetta mál er stórt og viðamikið. Við í minni hlutanum í atvinnuveganefnd, ég og hv. þm. Ólafur Ísleifsson, lögðum fram þetta nefndarálit með frávísunartillögu þar sem við teljum að málið hefði þurft lengri tíma og meiri úrvinnslu, hefði þurft að koma fyrr fram. Þetta er það stórt og viðamikið mál að það tekur langan tíma að vinna úr þeim þáttum sem málið fjallar um. Við erum samt ekki á móti málinu eins og það er lagt fram, heldur hefði þurft að vinna það miklu betur. Þess vegna erum við með þessa frávísunartillögu um að vísa málinu til ríkisstjórnar.