almenn hegningarlög.
Virðulegi forseti. Ég ætla að halda aðeins áfram umræðu um þetta annars ágæta mál. Eins og ég fór hér yfir við 2. umr. þykir mér oft í þessum málaflokki full lítil áhersla á hagsmuni og réttindi fórnarlamba mansals frekar en á það að refsa gerendum. Ég geri ekki lítið úr mikilvægi þess og þar með þessa frumvarps, þetta er mikilvægt mál. Ég vænti þess fastlega að það verði lögfest og reyndar með öllum greiddum atkvæðum, hygg ég. Sjáum til með það. En eins og ég nefndi við 2. umr. eru fórnarlömb mansals stundum neydd til þess að taka þátt í ólöglegum athöfnum, svo sem fíkniefnasmygli eða einhverju því um líku. Ég fæ ekki betur séð, af fréttum og gögnum fortíðarinnar að dæma, en að þetta sé enn vandamál.
Aðeins er fjallað um þetta í lok greinargerðar frumvarpsins. Þar eru orð sem virka huggandi og gefa manni þá tilfinningu að þetta sé ekki vandamál, að fórnarlömbum mansals sé ekki refsað fyrir það ólöglega athæfi sem þau eru neydd til að taka þátt í. En vandinn er sá að það rímar ekki alveg við það sem ég hef séð í fréttum eftir að þau lög voru samþykkt. Ég ætla ekki að fara aftur yfir hið ógeðfellda mál sem ég nefndi hér síðast við 2. umr. þar sem spænsk kona var dæmd til fangelsisvistar á Íslandi fyrir fíkniefnasmygl þó að það væri algerlega ljóst og algerlega óumdeilt meðal dómara, saksóknara og allra að viðkomandi væri fórnarlamb mansals. Það var óumdeilt og enginn sagði að hún hefði staðið í þessu sjálf eða af eigin vilja. Samt var hún dæmd. Þetta var árið 2014, minnir mig. Sömuleiðis birtist frétt árið 2018 um að lögreglan á Suðurnesjum hefði áhyggjur af lagalegu stöðunni en lögin sem fjallað er um í greinargerð með þessu frumvarpi eru frá fyrri tíð, þau eru frá því fyrir 2013, mörgum árum fyrr. Mig minnir að þau hafi tekið gildi 2009 eða eitthvað því um líkt. Þetta hefur því verið vandamál, virðist vera, alla vega nógu mikið vandamál til að lögreglan á Suðurnesjum hafi áhyggjur af því og það eitt og sér er vandamál.
En það er annað atriði sem mér finnst ég verða að nefna og er ekki endilega þægilegt umræðuefni fyrir þingheim. Ég vil bara byrja á að segja það að hér tala ég alfarið og eingöngu fyrir sjálfan mig, ekki endilega fyrir alla aðra þingmenn Pírata. Það vill þannig til að á Íslandi er klám enn bannað, þ.e. framleiðsla og dreifing á klámi. Það er næstum því einsdæmi eftir því sem ég fæ best séð meðal frjálslyndra lýðræðisríkja en ég sá í fréttum nýlega að það væri líka bannað í Litháen. Það er löglegt í Svíþjóð, það er löglegt í Danmörku og það er löglegt í Noregi. Það er meira að segja löglegt upp að einhverju marki í Tyrklandi. Ég hygg að ástæðan fyrir þessu sé sú að við erum ekki alveg búin að taka það samtal til enda hvers vegna nákvæmlega það er sem við viljum hafa klám bannað á Íslandi.
Það er gott og blessað að fólk sé á móti klámi eða hafi áhyggjur af neikvæðum afleiðingum þess. Klámbannið lagar ekki þau vandamál og var ekki sett til þess að laga þau vandamál. Það var ekki sett af femínistum til þess að bjarga fólki í kynlífsiðnaði heldur sett af karlmönnum á 19. öld. Það voru bara karlmenn sem tóku þátt í því að setja þessi lög. Þeir gerðu það á eins miklu feðraveldistímabili og hægt er að hugsa sér. Það er bara söguleg staðreynd, virðulegi forseti. Ég veit að fólki finnst stundum þreytandi að heyra þetta en þetta er svona. Bannið felur það ekki í sér að fórnarlömbum mansals, sem eru neydd til að taka þátt í því að búa til klám, sé á einhvern hátt bjargað úr þeim aðstæðum. Það eru ekki áhrif þess banns. Áhrif bannsins eru þau að þeim fórnarlömbum er refsað. Það er að mínu mati siðferðislega rangt. Það er að mínu mati andfemínískt með þeim fyrirvara að femínistar eru ekki sammála um þetta og ég hygg að við eigum að fjarlæga þá klausu úr lögunum. Ég nefni þetta vegna þess að mér finnst sú umræða einkennast af því sama og ég sé gagnvart þessu máli, þ.e. að það er miklu meira hugsað um gerendurna en fórnarlömbin, þolendurna. Meiri áhersla er lögð á að refsa einhverjum til að koma í veg fyrir að eitthvað sé gert, sem er alveg skiljanlegt sjónarmið og mjög mikilvægt hvað varðar þetta frumvarp. En á sama tíma gleymist að það eru líka þolendur í spilinu og löggjöf sem er vel hugsuð, sem er vel meint, getur haft neikvæðar afleiðingar fyrir þann hóp.
Vímuefnamál eru annar slíkur málaflokkur sem við höfum rætt hér ansi mikið og ég vona að þingheimur drattist einhvern tímann til að klára það. Það er sama sagan þar. Þar ræður óbeit á vímuefnum, sem getur verið fullkomlega málefnaleg og eðlileg og skiljanleg og réttmæt, för með þeim afleiðingum að það kemur niður á þeim sem lenda í vandanum, nefnilega vímuefnaneytendum sem hafa lent í vandræðum með neyslu sína. Það er siðferðislega rangt að mínu mati. Við eigum ekki að refsa fólki fyrir að eiga við vandamál að stríða né fyrir að eiga kannski við vandamál að stríða, né fyrir að eiga kannski seinna við vandamál að stríða. Þegar kemur að klámi er það auðvitað ekki nýtt fyrirbæri. Klám er framleitt og því er dreift út um allan heim. Það kemur vonandi engum á óvart að það sé miklu meira en allt það ókeypis framboð af klámi sem er á netinu í dag, meira en nokkur einasta manneskja gæti nokkurn tímann kært sig um að horfa á. Ég vona að það sé alveg skýrt og ekki sé ágreiningur um það.
Ég veit að sumt fólk er hlynnt klámbanni á þeim forsendum að það sé til þess fallið að draga úr framleiðslu kláms. Ég bendi á þá staðreynd, virðulegi forseti, að svo er ekki. Það er staðreynd. Fólki getur líkað illa við þá staðreynd en raunveruleikinn er samt eins og hann er. Hvort sem við höfum áhyggjur af því að fólk horfi á klám með neikvæðum afleiðingum eða að unglingar horfi á klám með neikvæðum afleiðingum, eins og þeim að þeir líti á það sem kynfræðslu eða eitthvað því um líkt, þá lagar klámbannið ekki það vandamál, ekki neitt. Það bara gerir það ekki á nokkurn hátt. Það bjargar ekki einu einasta barni frá neikvæðum afleiðingum kláms og það bjargar ekki einu einasta fórnarlambi mansals sem er neytt til þess að taka þátt í því að búa til klám og dreifa því gegn vilja sínum. Það er ekki það sem löggjöfin gerir í dag. Ég sé hv. þingmann hrista höfuðið og ranghvolfa augunum yfir þessari ræðu. Ég átta mig á því hvaðan það viðhorf kemur og ég ber meira að segja virðingu fyrir því viðhorfi. Ég vil bara árétta að í þessu felst ekki að klám sé meinlaust. Ég trúi því ekki að það sé meinlaust, ég held að það sé raunveruleg hætta sem stafi af því óheyrilega aðgengi sem unglingar og börn hafa að klámi í dag. Ég tel að við eigum að bregðast við því og við eigum að gera það af alvöru. Ég er algjörlega sammála því að til er fullt af klámi þar sem ofbeldi á sér stað, klámi sem er niðrandi fyrir konur og annað fólk líka, og mér finnst það slæmt. Klámbannið bjargar því ekki, breytir því ekki og hefur engin áhrif til bóta hvað þær áhyggjur varðar. Það er ekki endilega gaman að hlusta á þessa ræðu, ég ber líka virðingu fyrir því. En svona er þetta. Það er á ábyrgð okkar hér á Alþingi að horfast í augu við raunveruleikann eins og hann er, líka þegar hann er óþægilegur og líka þegar benda þarf á eitthvað sem er óþægilegt og ömurlegt. Það er á okkar ábyrgð að hanna löggjöf sem gerir þó það besta sem við getum til að vernda réttindi og hagsmuni fórnarlamba, þolenda, ekki bara að elta vonda kallinn eins mikilvægt og það getur verið heldur líka að huga að réttindum og hagsmunum þeirra sem verða fyrir löggjöfinni.
Það er ekki tilviljun að ég nefni þetta í umræðum um þetta mál og í þessum aðstæðum. Fyrr á þessu ári varð mikil umræða um vefsetur sem heitir OnlyFans. Tíminn endist mér ekki til að fara yfir allt sem skiptir máli þar. En það er þannig að til er fólk á Íslandi í dag sem selur kynferðislegt efni af sér á þessum vef gegn gjaldi. Vefurinn tekur 20%, að mér skilst. Þetta fólk kemur fram í fjölmiðlum og segist gera þetta af fúsum og frjálsum vilja. Ég er ekki í neinni aðstöðu, og ég held ekki að neitt okkar hér inni sé í þeirri aðstöðu, til að segja þessu fólki hvað því raunverulega finnst, hvað það raunverulega vill gera eða í hvaða aðstæðum það er. Við ættum miklu frekar að hlusta á þetta fólk sjálft og fá sjónarmið þess fram og taka sjónarmið þess og málflutning trúanlegan. Þessi hópur er í þeirri undarlegu stöðu að vera fordæmdur af ýmsum aðilum í samfélaginu, sumum finnst þetta bara vera ógeðslegt, hata þetta einfaldlega, og það sést í ógeðslegum kommentum sem þetta fólk fær. Annað fólk hefur áhyggjur af hagsmunum þessa fólks, trúir því ekki að nein manneskja myndi gera þetta nema vegna misbeitingar í æsku eða vegna hræðilegra aðstæðna eða eitthvað því um líkt. Ég vil hlusta á fólkið sjálft sem segir frá sínum aðstæðum frekar en hvað einhverjum þriðja aðila úti í bæ finnst eða mér persónulega. Við höfum einfaldlega ekki efni á að ákveða fyrir annað fólk í hvaða aðstæðum það er. Við verðum að hlusta á fólkið sjálft, fólkið sem er í aðstæðunum. Ef við gerum það þá heyrum við mjög skýrt að það eru vissulega til skuggahliðar á þessum heimi en það sem verður líka skýrt er að jafnvel þó að fólk sé í myrkustu aðstæðunum þá er löggjöfin þannig í dag að lögreglan gæti gert tekjur þessa fólks upptækar og hægt væri að ákæra það fyrir kynferðisbrot samkvæmt almennum hegningarlögum, 210. gr., sem fjallar um framleiðslu og dreifingu á klámi.
Virðulegi forseti. Ef við látum okkur hagsmuni fórnarlamba mansals varða hljótum við að sjá að það er einfaldlega ekki siðlegt, það er bara siðferðislega rangt, að refsa þessu fólki, sama í hvaða aðstæðum það er, sama hvað við teljum okkur geta sagt um þær aðstæður. Það er siðferðislega rangt og við eigum ekki að gera það. Ég hef skrifað tvo til þrjá pistla um þetta efni og undantekningarlaust er snúið út úr því sem ég segi. Ég býst ekki við öðru. Þetta er þannig umræðuefni að fólki virðist bara finnast sjálfsagt að snúa út úr þessu. Sjálfum finnst mér það óheiðarlegt og ég ætla bara að svara fullum hálsi. Ég læt það ekki yfir þennan málaflokk ganga að fólki sé meira annt um að setja sjálft sig á háan hest og gera öðrum upp annarlegar hvatir, bara til þess að geta tjáð hvað það hatar klám eða kynlífsiðnaðinn mikið. Það er gott og blessað að hata klám, það er gott og blessað að hata kynlífsiðnaðinn. Það er ekki málið, virðulegi forseti. Við erum öll alveg sammála um það. En við eigum ekki að refsa fórnarlömbum vegna þess að það er siðlaust.
Ég fór lengra út í þessa umræðu en ég ætlaði mér í upphafi. En það er nú þannig að þegar svona tabúviðfangsefni, sem er sjaldan talað um og fólk vill helst gleyma, koma til umræðu þá losnar um einhverja stíflu. Þótt ég styðji þetta mál og styðji það að sjálfsögðu að refsa fyrir mansal þá megum við ekki gleyma þolendunum, megum ekki gleyma þeim sem verða fyrir lögunum. Við verðum að taka það til alvarlegrar athugunar ef lögin okkar eru þannig að fólk sem býr við kúgun, fórnarlömb mansals, veigri sér við að hafa samband við yfirvöld eða vinna með yfirvöldum af ótta við neikvæðar afleiðingar. Þá er eitt viðhorf sem ég hef tekið eftir hjá yfirvöldum og fólki í valdastöðu almennt. Það lætur oft eins og neikvæðu afleiðingarnar sem það beitir aðra séu ekki stórmál, skipti engu sérstöku máli. Aftur ítreka ég: Við verðum að hlýða á fórnarlömbin sjálf, á þolendurna sjálfa, á fólkið sem er í aðstæðunum. Það er fólkið sem á að fræða okkur. Við eigum ekki að segja þessu fólki hvernig því líður eða í hvaða aðstæðum það er, við eigum að hlusta þegar að því kemur. Við verðum að geta talað um þetta upphátt og við verðum að geta tekið ákvarðanir sem eru þó þannig að við horfumst í augu við raunveruleikann eins og hann er. Okkur þarf ekkert að líka vel við hann. Við þurfum ekki að samþykkja hann, við þurfum ekki að normalisera hann en við verðum að skilja hann.