151. löggjafarþing — 110. fundur,  9. júní 2021.

almenn hegningarlög.

550. mál
[14:07]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ræða hv. þingmanns var áhugaverð. Mér fannst eins og hún væri töluð af tveimur mönnum. Ég ætla að reyna að spyrja þá báða, vegna þess að annar maðurinn talaði um samúð sína með fórnarlömbum mansals, hvað þau ættu erfitt uppdráttar og hvað væri nauðsynlegt að gera fyrir þau, sem ég er alveg hjartanlega sammála. En hinn talaði um að leyfa klám. Hvernig þetta tvennt á að falla saman er mér algjörlega hulið.

Hv. þingmaður talaði um að hlusta. Ég velti því fyrir mér, og það er ein spurning til hv. þingmanns: Hefur hann hlustað á fulltrúa Stígamóta? Hefur hann hlustað á fulltrúa uppeldisstétta sem hafa bent á að klámvæðingin — það er klámvæðing í gangi og hv. þingmaður virðist hafa þá skoðun að við eigum bara að láta undan henni og sætta okkur við að þetta sé svona.

Við eigum kannski líka bara að sætta okkur við það ef almenningur fer að keyra mjög hratt. Þá sættum við okkur bara við það en setjum ekki strangari viðurlög. Ég verð að viðurkenna að ég skil þetta bara ekki. Það örlaði þarna á mjög gamaldags viðhorfum í ræðu hv. þingmanns. Hann virðist — og hann leiðréttir mig ef það er rangt — aðhyllast þessa gömlu goðsögn um hina hamingjusömu hóru, þ.e. að menn sem taka þátt í — og konur, sérstaklega — klámiðnaði geri það bara af fúsum og frjálsum vilja, geri það bara að yfirlögðu ráði, geri það ekki undir neinum þrýstingi. Ég viðurkenni að ég skil þetta bara ekki. Þess vegna langar mig til þess að spyrja báða hv. þingmenn hvort sjónarmiðið er ofan á; að hafa samúð með brotaþolum eða að leyfa klám. Og klámvæðingin leiðir svo aftur til þess að það verða enn fleiri brotaþolar.