almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Þetta er því miður frekar dæmigert viðhorf. Ég verð að segja að ég er sjálfur svolítið forviða á því hvað fólki finnst erfitt að skilja þetta, að refsa ekki fórnarlömbum. Flóknara er það ekki, virðulegur forseti. (ÞorS: Spurðu þá.) Við refsum ekki fórnarlömbunum. (ÞorS: Spurðu þá.) Hv. þingmaður spyr hvort ég hafi hlustað á fulltrúa Stígamóta. Og svarið er já, að sjálfsögðu hef ég gert það. Að sjálfsögðu hef ég líka hlustað á sjónarmið þeirra sem hafa verið í kynlífsiðnaðinum, höfðu kannski gaman af honum fyrst og síðan leiðir hann út í einhvern dimman dal, einhvern viðbjóð sem viðkomandi vill komast út úr. Í engum þeim tilfellum veit ég til þess að það sé við hæfi eða siðferðislega verjandi að refsa þeim einstaklingum sem lenda í vandræðunum og lenda í kúgunaraðstæðum. Það er það sem klámbannið gerir í dag og ekkert annað. Það hefur einfaldlega ekki þau áhrif að draga úr framleiðslu á klámi eða dreifingu þess eða aðgangi að því. Það hefur einfaldlega ekki þau áhrif, virðulegi forseti. Ég skora á hv. þingmann að lesa ákvæðið. Það hefur ekki þau áhrif.
Að vera á móti klámvæðingu er ekki mótsögn við það að vilja ekki refsa fórnarlömbum mansals. Það er einfaldlega ekki mótsögn þar. En hv. þingmaður virðist líta á þetta svipuðum augum og vímuefnamálin, þ.e. að vímuefni hafi neikvæðar afleiðingar og til þess að passa að fólk noti þau ekki þurfi að hafa enn þá neikvæðari afleiðingar. Við þurfum að refsa fólki ofan á vandamálið sem það stríðir við út af fyrirbærinu sjálfu. Það, virðulegi forseti, er í mínum huga bara ábyrgðarlaust og siðlaust.
Ég virði hv. þingmanni þó það til vorkunnar, eins og öðrum hv. þingmönnum og vissulega mörgum hér í samfélaginu, að fólk virðist ekki skilja þetta af ástæðum sem mér eru ókunnar vegna þess þetta er afskaplega einfaldur punktur: Að refsa ekki fórnarlömbunum. Flóknara er það ekki. Við eigum að refsa þrælapískurunum. Við eigum að refsa þeim sem búa til mansalið. Við eigum að refsa þeim sem kúga annað fólk, en ekki þeim kúguðu sjálfum. Ég kann ekki að útskýra þetta betur, virðulegi forseti.
Hvað varðar hamingjusömu hóruna sem hv. þingmaður nefndi þá fjallaði ég ekki um hana eða hvort hún sé til vegna þess, virðulegi forseti, að að mínu mati kemur það málinu ekki við. Það á ekki að refsa hórum, hvort sem þær eru hamingjusamar eða ekki.