almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Þegar maður drekkur þann kaleik að dirfast að tjá sig um þessi mál þá þarf maður að svara svona heimskulegum spurningum. Spurningin er heimskuleg, virðulegi forseti. Hún er heimskuleg af þeirri ástæðu að ef við stæðum hér og fjölluðum um einhverja kynhegðun sem áður hefði verið talin ósiðleg eða einhvern veginn vond, ef einhver kæmi hér upp og segði: Heyrðu, fullorðið frjálst fólk á bara sinn eigin líkama, það má fara með líkama sinn eins og viðkomandi vill. Kæmi þá hv. þingmaður hér upp og segði: Má þá misnota börn? Væri það ekki heimskuleg spurning, virðulegi forseti? (ÞorS: Ég spurði þig ekki svoleiðis.) Hv. þingmaður spurði mig bara víst svoleiðis, virðulegur forseti. (Gripið fram í.) Það er grundvallarmunur á fullorðnu fólki og börnum, (Forseti hringir.) eins og hv. þingmaður veit mætavel. (ÞorS: Ég spurði ekki um það …) Ég þarf ekkert að útskýra þann mun fyrir hv. þingmanni. Það er enginn hér … (Forseti hringir.)
(Forseti (BHar): Forseti biður þingmenn að hætta að tala sín á milli. Ræðumaður hefur orðið, eins og hefð er fyrir.)
Virðulegur forseti. Það er grundvallarmunur á fullorðnu fólki og börnum, eins og hv. þingmaður veit mætavel. Hann spyr þessarar spurningar til að afvegaleiða umræðuna, eins og er því miður algengt ef einhver dirfist að tala um þessi mál. (ÞorS: … spurningar.) Það er munur á fullorðnu fólki og börnum, munur sem er augljós, munur sem er lögfestur. Fyrir utan það að hér er ég ekki að fjalla um að klám sé bara allt í lagi. Það eru raunverulegar ógnir við klám, það eru raunveruleg vandamál sem leiða af því. Það sem ég er að segja er að við eigum ekki að refsa fórnarlömbunum.
Ég vil spyrja á móti, virðulegur forseti: Ef barn verður fórnarlamb níðings sem tekur af því myndir og birtir þær, á þá að refsa barninu? Á þá að refsa barninu? Hvert er svarið, hv. þingmaður? (Gripið fram í.) Svarið er nei, það á ekki að refsa barninu, auðvitað ekki. Hvers vegna ekki? Vegna þess að það væri siðleysi, virðulegi forseti. Það er heili punkturinn. Hv. þingmaður vill endilega draga þetta út í einhver persónuleg viðhorf til kláms og klámvæðingar eða þess háttar. Við getum eflaust rætt það. En það breytir því ekki að við eigum ekki að refsa fórnarlömbunum, virðulegi forseti. Það er það sem ég var að fjalla um. Hv. þingmaður getur haldið áfram að reyna að afvegaleiða umræðuna frá einhverju öðru. Ég ætla að halda mig við þetta efni.