151. löggjafarþing — 110. fundur,  9. júní 2021.

almenn hegningarlög.

550. mál
[14:17]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Það er alltaf áhugavert að hlýða á hv. þingmann og gott að fá tækifæri til að skiptast á orðum í andsvörum um mikilvæg atriði eins og við höfum reyndar áður gert, við gerðum það við 2. umr. þessa máls. Í greinargerðinni segir, með leyfi forseta:

„Mansal er gróft mannréttindabrot sem felst í að brjóta gegn friðhelgi einstaklings. Brotastarfsemin beinist gegn frjálsræði brotaþola og helgustu persónuréttindum í þeim tilgangi að hagnýta líkama viðkomandi, vinnukrafta eða þekkingu í annars þágu.“

Við fjöllum hér um mjög alvarleg brot. Við heyrum það frá lögreglunni og lesum það í skýrslum lögreglu að hún fjallar um þetta og telur miklar líkur á því að þessi brot komi við sögu hér á Íslandi og er hræðilegt til þess að hugsa. En efnisatriðið sem ég ætlaði að nefna í þessari umferð við hv. þingmann er refsiábyrgð þolenda mansalsbrota. Ég þykist vita að hv. þingmaður sé vel að sér um greinargerðina með frumvarpinu, það sem er rakið aftast í greinargerðinni. Það eru ákvæði í lögum um meðferð sakamála og sömuleiðis í almennum hegningarlögum sem eiga að sjá til þess að þolendum mansalsbrota sé ekki gerð refsing. Ég vil því spyrja hv. þingmann hvort hann telji þessi ákvæði sem þarna er vitnað til ófullnægjandi. Í framhaldi (Forseti hringir.) af því: Telji hann svo vera hefur hann hugsað sér að leggja fram breytingartillögu við þetta frumvarp til að bæta úr?