151. löggjafarþing — 110. fundur,  9. júní 2021.

almenn hegningarlög.

550. mál
[14:56]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Hæstv. forseti. Við ræðum hér mjög svo mikilvægt mál sem fjallar um mansal. Ég er að koma að þessu máli í fyrsta sinn hér í þingsal þó að við séum á síðustu stigum umræðunnar. Við fyrstu sýn vil ég halda því fram að þetta sé nokkuð gott og vel unnið mál. Farið er býsna vel yfir tilgang þessarar breytingar núna sem gerð er grein fyrir í greinargerð með frumvarpinu. Mér sýnist hafa verið vandað til verka. Verið er að tala um breytingar á lagagrein almennra hegningarlaga um mansal í samræmi við lagaþróun annars staðar á Norðurlöndunum og auðvitað í sambandi við alþjóðlega sáttmála og athugasemdir GRETA, eins og komið hefur fram, en það er sérfræðingahópur Evrópuráðsins um aðgerðir gegn mansali. Þetta segir okkur að það er brýn þörf á að fylgjast mjög vel með þróuninni. Því er haldið fram að glæpasamtök séu alltaf á undan löggjafanum þannig að það veitir ekki af að við séum dálítið á tánum hvað þetta varðar.

Það er vissulega hægt að taka undir þau orð sem koma fram í frumvarpinu, að baráttan gegn mansali, sem við reynum að vera stöðugt í, sé sameiginlegt verkefni allra ríkja heimsins. Það er ekki hægt að líta á það öðruvísi. Það eru býsna mörg ár síðan, árið 2000, að sett var fram samþykkt gegn mansali á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, sem oft hefur haft góða forgöngu um góð og mikilvæg mál, og gegn hinni fjölþjóðlegu glæpastarfsemi sem er náttúrlega það sem það er. Það kallaðist Palermó-samningurinn. Auk þess var samþykkt sérstök bókun til að koma í veg fyrir, uppræta og refsa fyrir mansal. Enn og aftur eru það konur og börn sem eru í hvað viðkvæmastri stöðu. Þannig að við erum annars vegar með Palermó-samninginn og svo hins vegar Palermó-bókunina, sem er ítarefni.

Samningurinn var undirritaður árið 2000 og við Íslendingar náðum að fullgilda samninginn árið 2010. Eins og hefur komið fram í ræðum er það svolítið seint, en svona eru nú hlutirnir stundum. Evrópuráðið hefur haft ágæta forgöngu um þetta og við höfum fylgt í kjölfarið. En við höfum samt sem áður verið nokkuð á tánum, vil ég leyfa mér að segja, og fylgst mjög vel með undanfarin mörg ár vegna þess að greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur ítrekað, jafnvel árlega, gefið út skýrslur um stöðuna í víðu samhengi. Það segir manni að fólk vinnur vinnuna sína virkilega vel.

Í þessu frumvarpi erum við líka að telja til forvarnir. Það er mjög mikilvægt og það er nánast gott að við skulum gefa því gaum að nefna forvarnir í þessu sambandi. Fjallað er um vernd brotaþola og svo er fjallað um rannsókn og saksókn vegna mansals. Auðvitað erum við líka að fjalla hér um samstarf. Það hlýtur að þurfa að vera mjög gott og virkt samstarf þar sem þetta er fjölþjóðlegt vandamál.

Mig langar aðeins að fara inn í kafla sem fjallar um GRETA-hópinn, sem er hópur sérfræðinga sem veitt hefur fjölmörgum ríkjum leiðsögn og tekið út þær aðferðir, aðgerðir og það regluverk sem við erum t.d. með hér á Íslandi. GRETA hefur skilað af sér skýrslu bæði til Íslands og fleiri landa, þar sem þetta mat er kynnt til sögunnar. Það eru tvær skýrslur sem snúa sérstaklega að Íslandi. Sú fyrri var birt 2014 og seinni var birt 2019. Í þeirri skýrslu sem síðar kom fram er sérstaklega gagnrýnt að ekki sé fjallað um nauðungarhjónabönd, þvingað betl, eins og hefur verið minnst á hér, eða þvinguð afbrot í íslenskri löggjöf um mansal. Í frumvarpinu er einmitt tekið tillit til þessara ábendinga. Það er að mínu mati mjög gott ef hlutirnir geta virkað þannig að sérfræðingar komi með ábendingar og svo sé það löggjafinn, og þar með talið framkvæmdarvaldið, sem setur fram mál sem taka mið af þessari sérfræðiráðgjöf.

Einnig er tekið til mats ríkislögreglustjóra á brotastarfsemi og þá sérstaklega þeirri sem við köllum skipulagða brotastarfsemi. Embætti ríkislögreglustjóra setti á stofn sérstaka greiningardeild og tók hún til starfa 2007 og hefur fylgst með hvernig þróunin hefur verið. Deildin hefur gefið út skýrslu nánast árlega þar sem lagt er mat á þær aðgerðir sem gripið verður til og líka hvernig samfélagið hefur þróast. Og talandi um þessa þróun þá er í fyrsta sinn í skýrslu sem kom út 2015 fjallað um vinnumansal. Það er sett í sérstakan flokk um mansalsmál. Það var eiginlega ekkert fjallað um vinnumansal fram að þeim tíma, sem segir okkur að það er alltaf verið að finna nýjar leiðir til að brjóta á fólki, hreinlega til að hagnast á fólki. Áður var fjallað um skipulagt vændi. Stundum hefur það verið tengt svokölluðum súlustöðum sem spruttu upp hér uppi á landi, að þannig hafi glæpahópar fyrst getað skotið rótum. Það er örugglega rétt mat hjá þeim, sem hafa vit á því, að halda því fram.

Í nýrri matsskýrslu frá greiningardeild ríkislögreglustjóra frá 2019 segir að skipulagt vændi hafi aukist hér á landi og að hluti þess tengist skipulögðum brotahópum. Fjallað er um að Ísland sé áfangastaður fyrir mansal. Sú staðreynd ein og sér boðar nú ekkert sérstaklega gott. Einnig er fjallað um vinnumansal innan byggingariðnaðar, veitingarekstrar og ferðaþjónustu. Það er ágætt að það komi fram og sé nefnt með þessum hætti í frumvarpinu, það sýnir okkur að fólk er að fylgjast með. Einnig er fjallað um að erlendir ríkisborgarar hafi verið fluttir til landsins með skipulögðum hætti til að sæta mansali og misneytingu.

Skýrsla greiningardeildarinnar er býsna svört og hana er hægt að nálgast á vefnum. Og þær eru nokkrar, skýrslurnar. Ég er aðeins búin að glugga í þessa skýrslu, frá 2019, og ég verð að segja að þar er mjög ítarlega og vel farið yfir hver staðan er og hvernig við getum hagað okkar málum.

Það er líka fjallað um að mikil fjölgun hælisleitenda auki hættuna á mansali, ég vil taka undir það, alveg á sama hátt og mikill vöxtur í byggingariðnaði mun ýta undir mansal sem tengist byggingariðnaði. Ég vil líka segja að mikill vöxtur ferðaþjónustunnar gæti aukið þessa hættu. Þannig að þetta liggur víða. Í fréttum fyrir ekki svo löngu var t.d. verið að ræða um hvernig aðilar voru fengnir til að svíkja fé út úr tryggingafélögunum, bara með því að keyra á ljósastaura og fara svo og fá bætur frá tryggingafélögum. Ætli það komi ekki fram í næstu skýrslu greiningardeildarinnar að það sé hluti af vandanum?

Í þessu frumvarpi er einnig fjallað um aðra löggjöf á Norðurlöndunum. Það er sérstaklega talað um löggjöf í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Þá er fyrst komið samhengi í hlutina þegar því er haldið fram að við höfum verið nokkuð sein með að fullgilda okkar part í Palermó-samningnum og Palermó-bókuninni vegna þess að Danmörk fullgilti sinn samning og bókun 2003 og mér sýnist Noregur hafa verið á sama ári. Svíþjóð fullgilti bókunina og samninginn árið 2004. Finnland var á svipuðum stað, fullgilti Palermó-samninginn 2004 og svo bókunina 2006, þannig að við erum á svipuðu róli. En það er alveg ljóst að framþróun laganna sem hér eru undir er sannarlega í takt við breytingarnar í samfélaginu, og við getum valið að segja sem betur fer eða því miður eftir því hvaða augum við lítum á þessa þróun.

Mig langar aðeins að fara með beina tilvitnun hér, með leyfi forseta, af því að mér finnst það skipta mjög miklu máli:

„Í þessu frumvarpi eru lagðar til breytingar á 1. mgr. 227. gr. a er lúta að refsinæmi mansals í þeim tilgangi að bæta enn frekar vernd þolenda og auðvelda málsókn á hendur þeim sem ábyrgir eru fyrir brotunum. Við breytingarnar hefur sérstaklega verið tekið mið af þróun löggjafarinnar annars staðar á Norðurlöndunum, annarri skýrslu GRETA um Ísland, tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/36/ESB til að koma í veg fyrir og berjast gegn mansali og vernd þolenda og samþykktum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, annars vegar nr. 29 frá 1930 um nauðungarvinnu (nauðungarvinnusamþykktin), sem íslenska ríkið fullgilti 1958, og hins vegar nr. 105 frá 1957 um afnám nauðungarvinnu, sem íslenska ríkið fullgilti 1960, auk bókunar við samþykkt stofnunarinnar um afnám nauðungarvinnu frá 11. júní 2014, sem íslensk stjórnvöld fullgiltu í júní 2017.“

Þetta finnst mér vera kjarni málsins og finnst því mikilvægt að draga þetta sérstaklega fram.

Annað sem er gott að sjá er að það hefur verið virkt samráð við þá aðila sem koma að málum. Það er líka tekið fram að drög að frumvarpinu voru í samráðsgátt frá 28. janúar til 4. febrúar og bárust engar umsagnir um það. Það segir mér að frumvarpið er vel unnið þannig að ég ætla ekki að reyna að finna frekara efni sem segir eitthvað á móti því, því að mér sýnist á öllu að þetta mál sé sérstaklega vel unnið, enda er því ætlað að treysta frekar vernd þolenda, ekki síst kvenna og barna, og það er stóra málið.