almenn hegningarlög.
Herra forseti. Ég skal reyna að hafa í huga að hafa ræðu mína þannig að hún falli innan 15 mínútna rammans, en eins og við ræddum fæ ég kannski eitt dingl þegar fimm mínútur og 30 sekúndur eru eftir til að auðvelda mér að stilla af það sem ég ætla að koma inn á. Það sem við fjöllum um í 3. umr. er mál þar sem megininntakið er barátta gegn mansali. Okkur hefur verið tíðrætt hér í dag um skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra, bæði þá er kom út 2017 og þá sem kom út 2019. Fleiri plögg liggja til grundvallar því mati að staðan sé að verða alvarlegri hvað skipulagða glæpahópa varðar og framgöngu þeirra eftir því sem árin líða og fótfesta þeirra virðist verða öruggari og fastari í íslensku samfélagi, í íslenskum jarðvegi.
Í fyrstu ræðu minni í þessu máli lagði ég fyrst og fremst áherslu á það sem í daglegu tali er kallað vinnumansal. Það er mjög fjölþætt svið og getur verið allt frá því að einstaklingar séu með einum eða öðrum hætti að vinna upp í skuld þess sem hefur boðvald yfir þeim, hvort sem það er vegna flutnings fjölskyldu viðkomandi í tengslum við fjölskyldur á flótta, hvort sem það er í tengslum við það að sá sem hefur boðvaldið hefur tryggt atvinnuleyfi á stað sem horft væri til sem betra svæðis efnahagslega, við getum talað um Ísland í því samhengi, eða með hverjum þeim hætti sem það kann að vera. Það getur t.d. verið með þeim hætti að vinnuveitandi sjái launþega fyrir húsnæði og allt þar fram eftir götunum. Það er því auðvitað í mörg horn að líta hvað það varðar.
Síðan höfum við það sem oftast kemur upp í umræðunni í tengslum við mansal, sem er vændi, klám og klámvæðing. Auðvitað er þyngra en tárum taki hvernig á löngum köflum virðist hafa verið haldið á þeim málum og með hvaða hætti glæpagengi ganga fram í þeim efnum. Því miður er það sá kaldi raunveruleiki sem við okkur blasir og okkur ber skylda til að reyna að laga regluverkið þannig að staða þeirra einstaklinga sem fyrir verða í samfélaginu verði betri en nú er.
Mig langar að koma inn á nefndarálit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar sem undir rita sjö nefndarmenn, þar á meðal fulltrúi Miðflokksins í nefndinni, sem er hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson. Þar segir almennt undir umfjöllun nefndarinnar, með leyfi forseta:
„Samhljómur var á meðal gesta um mikilvægi þess að auka réttarvernd þeirra sem verða fyrir mansali ásamt því að unnið verði markvisst gegn mansali. Þá var bent á mikilvægi þess að þær aðgerðir sem komi fram í áherslum stjórnvalda í aðgerðum gegn mansali og annars konar hagnýtingu frá árinu 2019 verði framkvæmdar en auk þess kom ákall um nýja stefnu og aðgerðaáætlun gegn mansali.“
Þetta ber svolítið að sama brunni. Áherslur stjórnvalda hvað varðar aðgerðir gegn mansali og annars konar hagnýtingu frá árinu 2019 hafa ekki nema að hluta til komist til framkvæmda. Ég lít svo á að nefndin sé að hvetja framkvæmdarvaldið til að ganga til verksins og nýta þau tæki og þær aðgerðir sem grundvöllur var lagður að árið 2019. Áfram segir hér, með leyfi forseta:
„Meiri hlutinn tekur fram að með framangreindum áherslum frá árinu 2019 var sett stefna stjórnvalda í mansalsmálum. Í ljósi þess að baráttan gegn mansali er viðvarandi verkefni hverrar þjóðar var stefnuskjalinu ekki afmarkaður tiltekinn tímarammi, heldur gildir [það] þar til annað verður lagt fram. Þannig eru aðgerðir almennt ekki tímasettar en þó séu tilteknar aðgerðir tímasettar. Meiri hlutinn leggur áherslu á það sem kemur fram í stefnuskjalinu að ætlast sé til að unnið verði að öllum aðgerðunum á skilvirkan hátt og þær sæti reglubundinni endurskoðun í umbótaskyni.“
Áfram hvetur nefndin til þess að þau vopn, þær aðferðir sem tækar eru í baráttunni gegn mansali verði notaðar. Okkur ber einfaldlega skylda til þess sem samfélag að tryggja að borgararnir séu sem frjálsastir hvað varðar ráðstöfun á eigin vinnuafli, tíma og viðverustað. Hér segir áfram, með leyfi forseta:
„Á fundum nefndarinnar var nokkuð rætt um stöðu þolenda mansals. Einkum var áréttað mikilvægi þess að þolendur fái viðeigandi stuðning og meðhöndlun á öllum stigum máls, m.a. að teknu tilliti til stöðu þolenda, eins og fötlunar. Þá var áréttað mikilvægi þess að ríki tryggi að þeir einstaklingar séu ekki settir í varðhald við komu til landsins sem grunur sé um að gætu verið fórnarlömb mansals.“
Nú verð ég að viðurkenna að ég tala um þetta atriði án þess að hafa kynnt mér sérstaklega umsagnirnar akkúrat hvað það varðar. Ég vil samt nefna það hér, og kannski kemur á daginn að ég hefði betur kynnt mér þetta atriði sérstaklega áður en ég nefni það hér en ég ætla samt að leyfa mér það, hvort það alversta sem einstaklingur sem kemur hingað til lands, og gæti verið fórnarlamb mansals, geti lent í sé að eiga samskipti og lenda í höndunum á lögreglu yfirvöldum, ef svo má segja. Með því hlýtur að slitna keðjan sem tengir þann sem verður fyrir mansali við glæpamanninn sem á tauminum heldur. Ég kem kannski inn á það í seinni ræðu minni við þessa umræðu. Fyrsta tilfinning mín er að það gæti verið til þess að rjúfa þessi tengsl að hið opinbera, íslensk yfirvöld, næðu sambandi við þetta mögulega fórnarlamb mansals. Þá kann að vera að varðhald sé í einhverjum tilvika leið til að slíta á þennan streng milli þess sem verður fyrir mansali og kúgarans.
Mig langar síðan aðeins að koma aftur inn á það sem ég kom inn á í fyrri ræðu minni, vinnumansal, í ljósi þess að komið er inn á það í nefndaráliti meiri hlutans. Þar segir, með leyfi forseta:
„Við meðferð málsins var bent á að ósamræmi virtist gæta milli skilgreiningar á vinnumansali samkvæmt texta a-liðar 1. gr. frumvarpsins og efnis greinargerðarinnar. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að vinnumansal nái yfir nauðungarvinnu, þrælkun, þrældóm eða aðra misnotkun á vinnuafli. Í ákvæðinu er ekki að finna orðalagið „önnur misnotkun á vinnuafli“ og þá væri einnig vert að taka til skoðunar hvort til vinnumansals eigi einnig að teljast vinna við bersýnilega óásættanlegar vinnuaðstæður sem m.a. ógna heilsu og öryggi þolanda.“
Um þetta vil ég segja á almennum nótum að okkur ber skylda sem samfélagi til þess að tryggja forsvaranlegar vinnuaðstæður starfsmanna í hvaða grein sem þeir starfa. Það er ekki bara mennskan sem er í því fólgin að tryggja að svo sé, heldur snýst þetta líka um samkeppni og sanngirni á markaði. Fyrirtæki sem nýta sér vinnuafl með þessum hætti hafa forskot, segjum það bara eins og það liggur fyrir. Þau hafa forskot á samkeppnisaðila sína sem borga laun, lífeyrissjóð og önnur gjöld og kostnað, hafa tryggingamál í lagi, hafa vinnuaðstöðu forsvaranlega og þar fram eftir götunum. Þau fyrirtæki sem brjóta á starfsmönnum sínum með þessum hætti eru að tryggja sér forskot sem er hvorki sanngjarnt, eðlilegt né þeirrar gerðar að samfélagið ætti að sætta sig við það.
Í þessu samhengi má rifja upp yfirlýsingar í tengslum við flugumhverfið. Átta evrópskir samgönguráðherrar skrifuðu nýlega bréf til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins þar sem þeir hvöttu til þess að hugað yrði sérstaklega að því að fluggeirinn í heild sinni fyndi sig ekki í þeirri stöðu að félagsleg undirboð og tengd framganga næðu fótfestu á þeim markaði núna þegar fluggeirinn á svo mikið undir því að komast út úr óvissuástandinu innan þess regluverks, kjara og annars slíks, sem viðvarandi var fyrir heimsfaraldurinn. Nú, þegar við erum sem betur fer að komast út úr þeirri stöðu, þurfum við að gæta þess að tilteknir geirar sæti ekki lagi að gjörbreyta kjörum og starfsumhverfi. Ég nefni flugið sem dæmi, en auðvitað er miklu hættara við þessu í öðrum geirum atvinnulífsins. Af því að mannvirkjageirinn er mér ágætlega kunnur þá hafa oft komið upp deilumál sem snúa að því að kjör starfsmanna séu ósóforsvaranleg eða deilur um það hvernig laun skuli reiknuð út og því sem haldið er eftir og þar fram eftir götunum. Allt ber það að sama brunni að það skekkir samkeppnisstöðu fyrirtækja á markaði. Fyrirtæki sem borga sína skatta og gjöld, standa sína plikt gagnvart starfsmönnum sínum, byrja keppnina í verri stöðu en þeir sem aldrei ætla að standa skil á sínu, hvort sem það er gagnvart hinu opinbera eða starfsmönnum sínum. Með þetta í huga hvet ég okkur hér á Alþingi til þess að tryggja að haldið verði þannig á þeim málum að enginn misskilningur geti verið uppi hvað það varðar að Ísland, íslensk stjórnvöld, Alþingi Íslendinga, líti mansal, og þar með vinnumansal, alvarlegum augum.
Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hvað ég á mikið eftir af ræðutíma mínum.
(Forseti (GBr): Það eru tvær mínútur, tvær og hálf mínúta.)
Það gleymdist, fimm mínútna dinglið, nema ég hafi ekki heyrt það. Tvær og hálf mínúta, segir hæstv. forseti.
Undir lok ræðu minnar vil ég bara ítreka það sem ég sagði áðan. Okkur ber skylda til að spyrna fótum eins og mest má vera við öllu því sem fellur í daglegu tali undir hugtakið mansal, hvort sem það er vinnumansal eða mansal tengt vændi eða klámi eða öðru, mansal tengt hælisleitendum, eða hvað sem það kann að vera hverju sinni. Hvað hælisleitendur varðar gerum við það best með því að stýra þeim sem hingað koma í gegnum hið alþjóðlega kvótaflóttamannakerfi. Hvað vinnumansalið varðar gerum við það sennilega best með því að stýra viðskiptum okkar til þeirra félaga sem standa sína plikt og eru samfélagslega ábyrg. Það má til að mynda ekki vera að samningar hinna ýmsu ríkisstofnana og útboð ríkisfyrirtækja geti lent hjá aðilum eða fyrirtækjum sem ætla sér ekki að vera hluti af samfélaginu hvað varðar meðferð á starfsmönnum. Síðan er það sem snýr að klámi og tengdum þáttum þeirrar gerðar að það kallar á aðra ræðu. Það er þyngra en tárum taki að fylgjast með hversu erfitt það virðist vera á alþjóðavísu að spyrna við fótum í þeim efnum. Ég ætla að láta þessu lokið hjá mér í þessari ræðu en koma inn á afmarkaða þætti málsins í seinni ræðu minni hér á eftir.