almenn hegningarlög.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að hrósa forseta fyrir að standast þetta álag við þessar aðstæður því að þetta er ekkert einfalt mál. Eins og þetta blasir við mér byrjaði vesenið þegar við vorum að greiða atkvæði um tillögu mína um að fella æskulýðsstarf undir úrræði ríkisstjórnarinnar, sem fjölluðu að mestu leyti um íþróttafélög. Mér skilst að það hafi verið gerð mistök í þeirri atkvæðagreiðslu, að þingmenn sem ætluðu að styðja tillöguna hafi ekki gert það vegna þess að töflurnar sem við eigum að geta stuðst við í hliðarsölum voru ekki virkar. Þannig að ég tek auðvitað undir það að við verðum í eitt skipti fyrir öll að fá þetta kerfi okkar í lag, hvort sem það er út á við eða inn á við. Ég virðist meira að segja geta talað hér eins og mig lystir í margar mínútur án þess að einhver sé að bjalla á mig, sem er reyndar mjög gott, en það sýnir hversu vitlaust það er að halda áfram.