almenn hegningarlög.
Herra forseti. Ég skal alls ekki lengja þetta. Ég hlýt að taka undir með þingmönnum þegar þeir þakka hæstv. forseta fyrir viðbrögð hans. Ég hlýt að nefna sömuleiðis að það þarf að rannsaka það alveg til hlítar og upplýsa það alveg til hlítar hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis í atkvæðagreiðslu um breytingartillögu hv. þm. Önnu Kolbrúnar Árnadóttur vegna þess að niðurstaðan var mjög ólík því sem hefði kannski mátt búast við. Tillagan var um að æskulýðsstarfsemi á borð við KFUM og KFUK og Bandalag íslenskra skáta myndi falla undir þá fyrirgreiðslu sem ákveðið hefur verið að veita félögum innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Það þurfa að koma fram alveg skýr svör frá forsætisnefnd um það hvernig þetta mál er vaxið og hvernig verður hægt (Forseti hringir.) að leysa úr því ef það reynist vera svo að eitthvað misjafnt hafi þarna átt sér stað af tæknilegum ástæðum.