151. löggjafarþing — 110. fundur,  9. júní 2021.

almenn hegningarlög.

550. mál
[17:52]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Mig langar í seinni ræðu minni um það mál sem við ræðum hér við 3. umr. að fara stuttlega í skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra frá því í maí 2019. Hún hefur verið töluvert rædd í tengslum við það mál sem hér er fjallað um, þetta mansalsmál. Mansal er angi af þeirri skipulögðu brotastarfsemi sem ríkislögreglustjóri og hans fólk, lögregluembætti landsins, eru að glíma við dagsdaglega, m.a. þá 15 skipulögðu hópa sem talið er að liggi fyrir að séu að störfum hér á landi. Ríkislögreglustjóri hefur varað með mjög afgerandi hætti, svo að vægt sé til orða tekið, við þeirri þróun sem orðið hefur á undanförnum áratug rúmum og jafnframt flaggað því hversu varnarlaus við erum í raun. Í rauninni er hreinlega ótrúlegt hversu litla umræðu þessar tvær skýrslur frá greiningardeild ríkislögreglustjóra, frá 2017 og 2019, hafa fengið. Efnt var til sérstakrar umræðu hér í þinginu nú í vetur, en úti í samfélaginu hafa þær litla athygli fengið.

Viðvörunarorðin eru þess eðlis að nú getur þingið ekki setið hjá öllu lengur hvað það varðar að færa lögreglunni þau vopn og þau verkfæri sem bitið geta í slagnum við þessa skipulögðu glæpahópa. Ef við ætlum áfram að vera svona bláeyg og einföld í þessum efnum mun ástandið bara versna. Við sjáum t.d. þróunina sem orðið hefur hvað fíkniefnamálin varðar á undanförnum misserum. Efnin eru að verða harðari og harkan á götunni er að aukast jafnt og þétt. Eins og allir vita bárust síðast fréttir af hreinlega aftöku í tengslum við uppgjör þessara hópa.

Ég held að enn þá sé tækifæri til að stíga inn í þetta með þeim hætti að eitthvert gagn verði af, en því lengur sem við frestum því að taka þessa umræðu þannig að lögreglan fái þau úrræði, þau vopn sem geta gagnast í þessari baráttu, því ólíklegra verður að við náum raunverulega að spyrna við fótum þegar við fáum loksins kjark til að veita lögreglunni þann styrk og það afl sem lögreglan þarf svo sannarlega.

Í því ljósi vil ég, þó að skammt sé eftir af þingstörfum núna, beina því til þess þings sem tekur við í haust, að taka þessar tvær skýrslur frá 2017 og 2019, um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi, áhættumatsskýrslur greiningardeildar lögreglustjóra, til ítarlegrar og gagngerrar og alvarlegrar skoðunar og móta frumvarp — og það verður auðvitað á hendi dómsmálaráðherra — sem bit verður í.

Ég fullyrði í hið minnsta að þingflokkur Miðflokksins mun standa á bak við slíka lagasetningu og mér segir svo hugur að meiri hluti þingheims verði tilbúinn til slíks þegar það blasir við með þeim hætti sem raunin er. Ef við ætlum að leyfa þessu að gerast eftir að þessar viðvaranir hafa komið fram er það á okkar ábyrgð. Við verðum að nýta það tækifæri sem við höfum til að spyrna við fótum á meðan einhverja viðspyrnu er að fá. Ekki er víst að sú verði raunin, að slíkt verði mögulegt þegar þessir glæpahópar hafa náð enn öflugri fótfestu hér í samfélaginu en nú er. Og nóg er um eins og staðan er.