151. löggjafarþing — 110. fundur,  9. júní 2021.

tímabundnar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar á Íslandi.

604. mál
[19:13]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Við ræðum hér mál um tímabundnar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar. Mér er það bæði ljúft og skylt þar sem ég er í atvinnuveganefnd og er á nefndarálitinu um málið sem er líka til umræðu. Þetta er sem sagt hið besta mál og á svo margan hátt. Mig langar í upphafi ræðu minnar aðeins að koma inn á markmið og efni frumvarpsins sem er eitthvað á þessa leið, með leyfi forseta:

„Meginefni frumvarpsins lýtur að eftirfarandi atriðum, í samræmi við ábendingar úr framangreindri skýrslu Ríkisendurskoðunar. […]

Frumvarpið snýr jafnframt að bættri ráðstöfun opinbers fjár, eflingu eftirlits og því að skýra það endurgreiðslukerfi sem er í gildi. […] Frumvarpið felur í sér þrengingu á hugtakinu framleiðslukostnaður sem gerir það að verkum að við mat á endurgreiðslu er ekki aðeins horft til þess hvaða kostnaðarliðir falla undir endurgreiðslustofn í skilningi tekjuskattslaga heldur er enn fremur afmarkað sérstaklega hvaða kostnaðarliðir teljast vera framleiðslukostnaður sem myndar stofn til endurgreiðslu og hverjir ekki.“

Frumvarp til um laga um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi felur í sér breytingar á lögum nr. 43/1999. Verið er að stokka upp í þessum málum, gefa í og efla þennan iðnað. Það er mjög jákvætt í þeim skilningi að tækifæri okkar hér á Íslandi til að gera kvikmyndir eru rík vegna hnattstöðu okkar, vegna sérstakrar náttúrufegurðar á Íslandi eða stórbrotinnar náttúru og annars slíks. Þetta er líka landkynning og efling fyrir þá sem vilja fara í þennan iðnað hér heima. Þetta eru góð skilaboð til ungs fólks sem getur horft til þess að þarna á það möguleika á að afla sér tekna um leið og það vinnur að einhverju sem það hefur áhuga á, sem er náttúrlega mjög jákvætt.

Af hverju segi ég þetta? Kannski vegna þess að mig rekur minni til þess að hafa sjálfur komið nálægt kvikmyndagerð þegar ég var ungur. Ég hafði mikinn áhuga á leiklist og ætlaði að gerast leikari en er núna starfandi í þessu leikhúsi, tímabundið reyndar, en það er á annan hátt. Á þeim tíma var mér sagt að þetta væri í raun og veru bara leikaraskapur og ég skyldi reyna að afla mér menntunar í einhverju sem hefði praktískt gildi, að hægt væri að hafa einhverjar tekjur af því. Þá fór ég að gera eitthvað allt annað. Ég tók leiðsögn í þessum málum en sá alltaf pínulítið eftir því vegna þess að þetta voru góðir tímar. Það er að sannast í dag að heimur leiklistar selur líka. Hægt er að selja okkur góðar kvikmyndir, leikrit og afþreyingu. Einhverra hluta vegna vill fólk horfa á góð myndverk og góðar kvikmyndir. Ég hef sagt við börnin mín að þau eigi að læra það sem hugurinn stendur til en ekkert alltaf að vera að hugsa um hvað sé praktískt. Það er bara gleðiefni að segja að tvö þeirra eru í þessum listamannaheimi sem kvikmyndalistin er partur af.

Það er svolítið gleðilegt líka að fara aðeins yfir að þótt það séu ekki margar umsagnir eru þær allar í sömu átt. Ég gríp niður í umsögn frá Samtökum iðnaðarins, með leyfi forseta:

„Samtökin fagna því að framlengja eigi lög um endurgreiðslur til kvikmyndagerðar fram til ársins 2025. Endurgreiðslur til kvikmyndagerðar hafa margsannað gildi sitt og skipta sköpum fyrir samkeppnishæfni íslenskrar kvikmyndagerðar. Samtökin vilja jafnframt koma á framfæri ánægju með það að í skoðun sé að hækka endurgreiðsluhlutfallið með það að markmiði að laða stærri kvikmyndaframleiðsluverkefni til landsins og hafa SÍK skipað tvo fulltrúa í starfshóp á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem hefur þau mál til skoðunar.

Samtökin styðja umrætt frumvarp og þær breytingar sem það felur í sér. Á fyrri stigum málsins gerðu samtökin alvarlegar athugasemdir við drög að breytingum á ýmsum ákvæðum, m.a. varðandi skilgreiningu á framleiðslukostnaði. Eftir gott og uppbyggilegt samráð af hálfu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins við SÍK og SI hafa verið gerðar jákvæðar breytingar á umræddum ákvæðum. Þakka samtökin áheyrn ráðuneytisins og að tekið hafi verið tillit til athugasemda.“

Þarna hefur verið brugðist jákvætt við. Þetta er það sama og segir í fleiri umsögnum. Í umsögninni frá Samtökum iðnaðarins kemur fram þetta með að fá stærri kvikmyndaframleiðsluverkefni til landsins og öll þau afleiddu störf og allt sem í kringum það er.

Síðan langar mig líka að tala um það sem kom fram hér áðan en ég þekki það vel, komandi af landsbyggðinni þar sem hafa verið gerðar kvikmyndir sem hafa gengið vel. Það er svo mikil landkynning eða svo mikil uppbygging fyrir þessi svæði. Ferðafólk kemur eftir að kvikmyndirnar hafa slegið í gegn og vill sjá staðinn þar sem þær voru gerðar. Af því að ég kem vestan af Snæfellsnesi hafa kvikmyndir sem hafa verið gerðar í Flatey á Breiðafirði, alla vega þrjár sem ég man í fljótheitum, t.d. orðið til þess að traffíkin vestur í Flatey hefur aukist mjög mikið. Myndin sem Ben Stiller gerði fræga og var tekin fyrir vestan líka, mikið í Stykkishólmi — maður er enn þá að sjá fólk taka ljósmyndir af þeim stöðum sem voru mest áberandi í henni. Það segir manni að þetta hefur virkað úti um allan heim. Þetta er jákvæði þátturinn í því. Það er ekki bara gaman að horfa á góða kvikmynd heldur eykur það líka gildið að fólk komi til að sjá hvar myndin var gerð. Við sjáum það t.d. bara á Húsavík núna með þessa Eurovision-mynd. Húsavík er inni í dag vegna þess og svona mætti áfram telja. Framtíðin í þessum geira er björt, myndi ég segja, og það eigum við að byggja undir.

Svo er misjafnt hverju menn hafa gaman af og líka hvað aflar tekna. Það er ekki allt eins og það var fyrir 40–50 árum. Því ber að fylgjast vel með hvað er að selja og hvað fólk vill horfa á, eins og í þessu tilfelli, og byggja undir það. Ég sé mjög bjarta framtíð í því að Ísland verði í fararbroddi í þessum málum áfram, eins og hefur reyndar komið fram. Eftir visst afrek okkar Íslendinga, sem var reyndar ekki í kvikmyndagerð heldur í handbolta, var sagt að Ísland væri stórasta land í heimi. Ég myndi segja að við gætum líka orðið stórasta land í heimi í kvikmyndaiðnaðinum ef rétt væri haldið á málum. Allt í einu rekur mig minni til James Bond-myndar sem var tekin hérna á Íslandi en hún sló algjörlega í gegn sem auglýsing fyrir landið.

Hæstv. forseti. Af því ég er að tala um umsagnir langar mig aðeins að grípa niður í umsögn frá Íslandsstofu. Þar segir, með leyfi forseta:

„Er það mat Íslandsstofu að árangur af endurgreiðslukerfinu hafi verið góður. Er það í samræmi við niðurstöður greininga sem unnar hafa verið sem sýna að kerfið hafi jákvæð áhrif, bæði fyrir íslenska kvikmyndagerð og samfélagið í heild sinni. Verkefnið hefur fallið vel að hlutverki Íslandsstofu að auka útflutningstekjur þjóðarinnar og styrkja og bæta orðspor landsins sem upprunalands vöru,“ — þetta er á fagmáli, þetta er vel orðað, — „þjónustu og menningar og áfangastaðar fyrir ferðamenn. Jafnframt hefur hinn mikli fjöldi erlendra kvikmynda- og sjónvarpsgerðarfólks, sem hafa tekið þátt í verkefnum hér á landi, styrkt innviði og aukið þekkingu innlendra kvikmyndagerðamanna sem hefur styrkt stöðu þeirra á alþjóðlegum markaði. Hefur þannig undanfarin ár orðið marktæk aukning á Íslendingum sem ráðnir eru til að starfa við erlend verkefni sem og dreifingu á íslenskum verkefnum til sýninga á erlendum vettvangi.“ — Þetta er að virka í allar áttir, líka fyrir möguleika einstaklinga til að fá vinnu úti í hinum stóra heimi.

„Íslandsstofa hefur þar að auki greint óbein áhrif öflugrar erlendrar og innlendar kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerðar á Íslandi í rannsóknum á áhrifaþáttum á ferðaþjónustu. Í skýrslu Ferðamálastofu frá því í september 2020 þar sem skoðuð er lýðfræði, ferðahegðun og viðhorf ferðamanna árið 2019 kemur fram að fjórir af hverjum tíu ferðamönnum nefndu íslenskt landslag í hreyfimyndefni þegar þeir voru beðnir um að tilgreina hvaðan hugmyndin að Íslandsferð hefði komið. Þá hafa verkefnin sjálf umtalsverð bein áhrif meðan á tökum stendur og hafa m.a. stuðlað að bættri nýtingu innviða í ferðaþjónustu utan háannar og utan þéttbýlis.“ — Þarna kemur m.a. fram að ferðafólk er að koma hingað, eins og ég nefndi áðan, vegna þess að það hefur kynnst landinu í gegnum hreyfimyndir, hvort sem það eru kvikmyndir eða aðrir þættir.

„Íslandsstofa fagnar því að til standi að framlengja endurgreiðslur til kvikmyndagerðar og þar með verði unnt að fylgja eftir þeim árangri sem náðst hefur. Íslandsstofa vekur athygli á umfjöllun í greinargerð frumvarpsins um að þeir framleiðendur sem njóta endurgreiðslna á framleiðslukostnaði veiti Íslandsstofu, henni að kostnaðarlausu, aðgang að kynningarefni sem tengist viðkomandi verkefnum. Sú heimild er afar mikilvæg fyrir verkefni Íslandsstofu og hefur nýst vel í þágu þess að laða frekari verkefni á sviði kvikmynda- og sjónvarpsframleiðanda til landsins sem og í annarri kynningastarfsemi.“ — Íslandsstofa er að benda á að það myndi lyfta undir vinnu þeirra til að auglýsa Ísland sem vænlegan kost.