151. löggjafarþing — 110. fundur,  9. júní 2021.

tímabundnar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar á Íslandi.

604. mál
[19:30]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég er þingmaður Norðvesturkjördæmis og afar stoltur af því. Mig langar að þakka hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur fyrir andsvarið. Af því að hún minntist á að ég hefði í ræðunni minnst á eigin reynslu og það sem mig langaði til að gera og síðan hvaða áhrif við hefðum á börnin okkar þegar við værum að ráðleggja þeim með hvað þau tækju sér fyrir hendur í lífinu þá vil ég bara algjörlega árétta það sem ég sagði áðan um að ráðleggja einhvern veginn á þann hátt sem hugur viðkomandi barns stendur til og spyrja það hvað það langi til að gera frekar en að leiðbeina því í þá átt sem er praktísk. Af því við erum að ræða kvikmyndagerðina þá eru gjörsamlega breyttir tímar frá því að ég var í þessu. Það var einhvern tímann í kringum 1978, 1979 og 1980 sem ég kom nálægt þessu. Þau ár voru kölluð, minnir mig, vor íslenskrar kvikmyndagerðar. Þá komu nokkrar góðar myndir fram og það fólk sem nennti að taka þátt í þessu þótti svolítið sérstakt. En í dag er þetta bara orðin atvinnugrein á svo margan hátt og það eru svo margir þættir í þessum geira sem fólk getur sérhæft sig í. Þannig að ég ráðlegg öllum þeim sem hafa áhuga á að nema eitthvað í þessa áttina að drífa sig í því.