tímabundnar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar á Íslandi.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að biðjast afsökunar á því að hafa gleymt að ávarpa forseta með tilhlýðilegum hætti, það voru leið mistök af minni hálfu. Tækifærin í þessari grein eru sannarlega fyrir hendi og ég er þess fullviss að greinin á eftir að vaxa enn frekar. Samt hefur mér stundum fundist það áhugavert í umræðu um kvikmyndagerðina — og reyndar bara menninguna í heild sinni en tölum um kvikmyndirnar sérstaklega núna — að stundum er talað með þeim hætti að það að greinin fari að skila okkur raunverulegum tekjum sé eitthvað sem bíði okkar í framtíðinni. Þá vil ég aftur vísa til þess sem fram kom í ágætri ræðu hv. þm. Birgis Þórarinssonar þar sem hann vísaði í rannsókn Ágústs Einarssonar sem hefur gefið út bók um hagræn áhrif kvikmyndagerðar þar sem beinlínis er rakið að stjórnvöld afli nú þegar — eða fyrir nokkrum árum, fyrir Covid og þann veruleika sem við erum að glíma við í dag — tekna sem taldar eru í milljörðum króna. Ein af helstu niðurstöðunum í þeirri rannsókn er einmitt að með því að fjárfesta og styðja markvisst við greinina þá getum við farið að horfa á að hér sé komin svo sterk grein að hann leyfði sér að tala um stóriðju í því sambandi. Það fannst mér áhugavert.