151. löggjafarþing — 110. fundur,  9. júní 2021.

tímabundnar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar á Íslandi.

604. mál
[20:18]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir það að hv. þm. Ólafur Ísleifsson upplýsi mig um það að Miðflokksmenn hafi mikinn áhuga á kvikmyndum og þetta er mjög góð skýring, frábærir þættir, og frábær bíómynd, Síðasti bærinn í dalnum.

Kvikmyndagerð er orðin risaiðnaður og kannski ólíkt mörgum öðrum greinum sem við köllum stundum skapandi greinar — að vísu eru allar greinar skapandi — eru auðvitað mismiklir möguleikar fyrir okkur til útflutnings í því, að afla gjaldeyris. En kvikmyndaiðnaðurinn er orðinn langstærstur í þessu, og kannski tölvuleikir. Það eru auðvitað heilmiklir möguleikar á að búa til alvöruatvinnugrein úr því.

Það er svo mikilvægt að við séum samkeppnishæf við önnur lönd og þetta frumvarp snýst um það. En það er alltaf spurning hvað þarf að ganga langt í því. Nú skilst mér að það sé rífandi gangur í þessu, sumir tala um að það eigi að bæta við, færa þetta upp í 35%. Sumir segja að það sé það rífandi gangur að við séum fullkomlega samkeppnishæf. Þótt finna megi eitthvert eitt land sem er með hærri endurgreiðslur þá geta verið einhver önnur atriði sem eru óþægilegri þar en hér o.s.frv. Við eigum mjög vel menntað kvikmyndagerðarfólk. Við þurfum bara að huga að því að það dragi ekki úr samkeppnishæfni okkar. Það á við svo margar greinar. Þess vegna hef ég alltaf sagt að lykilatriði stjórnmálamanna sé að skapa samkeppnishæft umhverfi í staðinn fyrir að fara í ríkisrekstur í öllu eða bein útgjöld.