151. löggjafarþing — 110. fundur,  9. júní 2021.

tímabundnar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar á Íslandi.

604. mál
[20:21]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla að grípa boltann á lofti þar sem hv. þingmaður skildi við hann. Verkefni alþingismanna er að skapa hagfelld skilyrði fyrir atvinnurekstur. Það er alveg nóg af mannskap sem kemur í þennan ræðustól og á annan vettvang og segir: Við þurfum að búa til störf. Málið er að alþingismenn búa ekki til nein störf. Störfin verða til, og menn geta t.d. séð hvernig grein spratt upp og óx eins og af sjálfu sér af því að hún hafði hagfelld skilyrði, ekki síst vegna þess að hún fékk ókeypis auglýsingu um allan heim vegna eldgossins sem enginn gat borið fram heitið á, Eyjafjallajökulsgossins.

En vegna orða hæstv. forseta þá var ég að vísa til mjög áhrifamikilla og eftirminnilega sænskra sjónvarpsþátta. Það er alveg rétt, ég bar fyrir mig heiti þeirra á sænskri tungu, Scener ur ett äktenskap, sem gæti í lauslegri þýðingu heitið Þættir úr hjónabandi. Þetta gleymist engum sem þetta sá. Hv. þm. Brynjar Níelsson á þetta örugglega á myndbandi og þetta var mjög skemmtilegt.

Lykilatriðið er þetta: Þetta er atvinnugrein, það þarf að búa henni hagfelld skilyrði. Hvort 25% hlutfall er akkúrat nákvæmlega rétt veit auðvitað enginn. Ég heyrði það eins og hv. þingmaður að hér var nefnt hlutfallið 35% með vísan til Írlands og að Írar hefðu hreppt verkefni sem við hefðum gjarnan viljað fá. (Forseti hringir.) Þar var gerð víkingamynd, eins og komist var að orði, með hinni heimsfrægu leikkonu Nicole Kidman og Stellan Skarsgård hinum sænska. (Forseti hringir.) Um þetta veit ég ekki en ég leyfði mér í ræðu minni að vera örlítið gagnrýninn á greinargerð frumvarpsins fyrir að vera ekki nægilega greinandi heldur með of mikið um fullyrðingar. (Forseti hringir.) Örlítið meiri greining hefði verið til bóta.

Afsakið, herra forseti.