151. löggjafarþing — 111. fundur,  10. júní 2021.

um fundarstjórn.

[10:34]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti fékk þau skilaboð að það hefði verið aðeins of bjartsýnt mat að skýrslan næðist á þeim tíma sem hæstv. ráðherra heimilaði forseta að upplýsa hér um vegna þess að þá var prófarkalestur eftir og umbrot á skýrslunni. Ekki er ætlað að það þurfi að taka nema eins og tvo daga. Miðað við þau skilaboð, sem fyrsti beiðandi skýrslunnar fékk jafnframt, þá snýst þetta um daga, þ.e. hvort skýrslan kemur í dag eða á morgun eða eitthvað svoleiðis. Það er staðan á því máli.