151. löggjafarþing — 111. fundur,  10. júní 2021.

frumvarp um starfslokaaldur ríkisstarfsmanna o.fl.

[10:35]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Það er orðið leiðinlegt þema ef það er þannig að þegar málum er vísað til ríkisstjórnarinnar þá þýði það einfaldlega að þau deyi drottni sínum. Það er auðvitað þannig að þegar málum er vísað til ríkisstjórnar þá ber ríkisstjórninni að vinna þau og leggja þau aftur fram. Ég verð því að taka undir málflutning hv. þingmanns sem talaði hér á undan og óskaði eftir því að málið hans kæmist á dagskrá. En þau eru fleiri málin sem ríkisstjórnin hefur að sögn ætlað sér að klára og hefur ekki klárað. Það hefur verið afsökunin fyrir því að vísa málum ýmist til ríkisstjórnar eða jafnvel fella þau hér í þingsal.

Virðulegur forseti. Það gengur ekki. Ríkisstjórnin þarf í það minnsta að gera það sem hún segist ætla að gera þegar málum er vísað til hennar eða þegar þau eru felld hér á þeim forsendum að þau beri að vinna betur hjá þeirri ríkisstjórn. Hún þarf þá að standa við það sem hún sjálf heldur fram.