fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Ég vil spyrja hv. þingmann hvað hann haldi að gerist hjá fólki sem búið er að vera atvinnulaust í tvö og hálft ár með tilheyrandi tekjufalli, sem er samkvæmt öllum greiningum 37% á fyrsta mánuði atvinnuleysis, ef við lengjum atvinnuleysistímabilið, höldum fólkinu, sem er langtímaatvinnulaust, lengur inni í kerfinu, með virkniúrræðum sem fylgja þegar þú ert inni í kerfinu? Hvernig ætlar hv. þingmaður að fylgjast með fólkinu sem er dottið út af atvinnuleysisskrá og komið inn á félagsþjónustu sveitarfélaganna eða ekki? Sú þjónusta er ekki samræmd um allt land og er a.m.k. helmingi lægri en atvinnuleysisbæturnar. Hvaða kostur er það fyrir samfélagið(Forseti hringir.) að halda þessu fólki í sárafátækt og engu utanumhaldi, þ.e. þeim (Forseti hringir.) sem ekki fá félagsþjónustuna sem er af skornum skammti frá sveitarfélaginu? Hvað er það sem (Forseti hringir.) hæstv. ríkisstjórn telur að sé bætandi fyrir samfélagið (Forseti hringir.) að halda fólki í fátækt og matarhjálp hjá hjálparstofnunum? Þetta er til skammar, forseti.