151. löggjafarþing — 111. fundur,  10. júní 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[11:06]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Willum Þór Þórssyni, formanni fjárlaganefndar, fyrir að kynna okkur efni fjáraukalaga. Síðar á þessum þingfundi er gert ráð fyrir því að við fjöllum um frumvarp til laga um breytingar á lögum um póstþjónustu og lögum um Byggðastofnun sem er gott og gilt efni. Það færir okkur frá því að viðhafa svonefnda alþjónustu í póstþjónustu, þ.e. eitt verð, eitt land, sama verð fyrir póstþjónustu um allt land. Nú á það bara að gilda um smábréf en markaðurinn á meira að taka að sér pakkaflutningana. Þetta er íþyngjandi atriði fyrir fólk sem býr úti á landi og reiðir sig í auknum mæli á vefverslun og annað eftir því og auk þess eru líka vefverslanir úti á landi sem þurfa hugsanlega að koma varningi sínum á markað. Ég velti fyrir mér, það hefur verið fjallað um það og starfshópur á að taka til starfa til að taka á þessu atriði, hvort ekki þurfi jöfnunarráðstafanir til þessa. Lögin taka gildi í júlí en alþjónustuákvæðin seinna á árinu. Ég velti fyrir mér hvort í fjáraukalögum, ég sé það ekki, sé að finna ákvæði sem grípa landsbyggðina að þessu leyti, grípa þennan útgjaldaauka sem mæta þarf ef meiningin er ekki sú að þetta eigi hreinlega að vera enn meira íþyngjandi fyrir landsbyggðina og rýra lífskjörin á landsbyggðinni sem eru þó óhagkvæm ef við miðum við þá sem búa hér í þéttbýlinu sunnan lands.