fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Það er lykilatriði, finnst mér, þ.e. að ráðherra segi ekki: Þetta er best. Heldur segi hann: Þetta er líklegasta og besta lausnin þar sem hin er ekki nógu góð út af þessu og hinu, þetta er ekki nógu gott út af öðru og ég álít að þetta sé lausnin á vanda okkar, miðað við allar greiningar sem til eru, til þess að við náum ákveðnum markmiðum.
Lykilatriðið í lögum um opinber fjármál er að þau eiga að vera markmiðamiðuð. Það er lykilatriði. Við viljum ná ákveðnum árangri, en hvernig við náum þeim árangri skiptir í rauninni ekki öllu máli ef við náum árangrinum. Það sem skiptir máli um hvaða aðgerðir við veljum til að ná þeim árangri er að mjög miklu leyti hvernig við fjármögnum þær og hvaða afleiddu áhrif eru af aðgerðunum, sem bæta kannski upp ýmislegt annað. Kannski er það fjölþáttaaðgerð sem nær markmiðinu en líka ýmsum öðrum. Þó að hún kosti meira kostar hún minna samtals af því að hún nær mörgum markmiðum. Það er ýmislegt svoleiðis.
Pólitíkin sem slík finnst mér að ætti að vera meira bundin við markmið. Við ætlum að ná ákveðnum markmiðum í sambandi við fátækt, menntun, innviði landsins, geðheilbrigðismál og ýmislegt svoleiðis. Hvernig við ætlum að ná þeim markmiðum skiptir í alvörunni ekki máli ef við náum þeim. Erum við sammála um að ná þessu markmiði? Ef við erum sammála um það er auðveldara að fara í gegnum alla möguleikana og skoða hvaða möguleikar eru bestir til að ná þeim árangri. Það er eitthvað sem fagleg stjórnsýsla á að hjálpa okkur við og að sjálfsögðu faglegir umsagnaraðilar. Ég er alveg sammála hv. þingmanni um aðstoðina sem bæði þingmenn og ráðherrar fá inn í ráðuneytin (Forseti hringir.) til að vera ákveðið mótvægi. Ráðherrarnir sem slíkir eru ekkert endilega fagaðilar í ráðuneytinu (Forseti hringir.) en þeir eru í rauninni fulltrúar samvisku þingsins inni í ráðuneytunum.