151. löggjafarþing — 111. fundur,  10. júní 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[12:23]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Ég vil koma í þessari 2. umr. um fjáraukalögin nánar inn á hjúkrunarheimilin og stöðu þeirra. Ég fór í fyrri umræðu aðeins yfir atvinnuleysið og stöðuna á vinnumarkaðnum. Ég ætla að koma líka aftur inn á það á eftir en allar stærstu og helstu fjárheimildirnar sem óskað er eftir í þessu frumvarpi tengjast vinnumarkaðsúrræðum. Hins vegar er ekki verið að leysa brýnan vanda hjúkrunarheimilanna nægilega vel.

Kannski er rétt að koma því á framfæri að Miðflokkurinn verður ekki með breytingartillögu við þessi fjáraukalög. Við höfum á kjörtímabilinu flutt rúmlega 20 breytingartillögur við fjárlög og fjáraukalög og þær voru allar fullfjármagnaðar og til hinna ýmsu mikilvægu sviða og ég kem nánar inn á það á eftir. Tillögurnar voru allar felldar af ríkisstjórnarflokkunum, hver einasta þeirra, þannig að við ákváðum hér og nú að koma því frekar á framfæri hvaða tillögur við höfum lagt fram. Síðan munum við kynna stefnu okkar á komandi vikum fyrir kosningarnar og okkar lausnir í brýnum málum sem blasa við. Við teljum það einfaldlega affarasælustu leiðina í þessum efnum vegna þess að ríkisstjórnin hefur mjög takmarkaðan skilning á því að samþykkja góðar tillögur frá minni hlutanum sem skipta máli.

Ég nefni sem dæmi að Miðflokkurinn flutti á síðasta þingi tvær tillögur vegna rekstrarvanda hjúkrunarheimilanna um 800 millj. kr. framlag til þess að laga brýnan rekstrarvanda hjúkrunarheimilanna. Sú tillaga var fullfjármögnuð, herra forseti. Hún hefði leyst að hluta til þann brýna vanda sem við stöndum frammi fyrir. Nei, ríkisstjórnin ákvað að fella tillöguna en kemur síðan núna með sína eigin tillögu á síðustu metrunum rétt fyrir kosningar. Til þess að þetta líti vel út fyrir hana kemur hún með tillögu upp á 1 milljarð til að reyna að leysa þennan brýna vanda. Við sjáum, herra forseti, sýndarmennskuna í þessu þegar verið er að fella góðar tillögur. Miðflokkurinn hefur löngum áttað sig á þeim brýna vanda sem hjúkrunarheimili standa frammi fyrir en ríkisstjórnin hefur hins vegar kosið að stinga höfðinu í sandinn þegar kemur að þeim mikla vanda.

Minnumst þess að hjúkrunarheimilin eru ein mikilvægasta grunnstoð íslenska velferðarkerfisins, það er bara þannig. Ríkisstjórnin hefur ekki staðið við áform sem komu fram í stjórnarsáttmálanum. Þetta voru voðalega fögur orð hér þegar ríkisstjórnin tók til starfa um að styrkja rekstrargrunn hjúkrunarheimilanna. Við sjáum hvernig hún hefur dregið lappirnar allan þennan tíma og meira að segja fellt tillögur sem miðuðu að því að styrkja rekstrargrundvöllinn. Á þessu tímabili, þar til núna, hefur ríkisstjórnin hrint í framkvæmd skerðingum á rekstrarframlagi til hjúkrunarheimila. Ríkisendurskoðun hefur bent á að rekstur hjúkrunarheimila sé mjög þungur þannig að ríkisstjórnin átti að vita þetta.

Róðurinn hefur þyngst ár frá ári og síðan breyta Sjúkratryggingar aðferðafræðinni við útgreiðslu á fjármagni. Það var ámælisvert vegna þess að samráðs var ekki gætt. Það var einhliða ákvörðun og án viðræðna við hjúkrunarheimilin, Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu og Samband íslenskra sveitarfélaga. Svo þegar ríkisstjórnin leggur fram fjármálaáætlun 2020–2024 þá segir hún einmitt að stærsta verkefni ríkissjóðs sé málefnasvið hjúkrunar- og endurhæfingarþjónustu. Og hvað var gert? Ekki nokkur skapaður hlutur fyrr en núna að ríkisstjórnin leggur fram þennan milljarð þegar í óefni er komið og hún sér að rekstraraðilar sjá sér hreinlega ekki fært að standa að rekstrinum eins og kom fram, m.a. í Vestmannaeyjum og fyrir austan. Það er ekki nóg að fjölga hjúkrunarrýmum. Það hljómar voðalega vel að byggja ný hjúkrunarheimili o.s.frv. en þegar kemur að rekstrinum þá er eins og það sé eitthvað sem menn þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur af. Tökum bara sem dæmi að ríkisstjórnin lagði upp með að byggja 900 rými og rúmlega 700 yrðu byggð til 2024 og státaði síðan af því að þetta væri heilmikil aukning. En á sama tíma og aukningin var 26% í nýjum rýmum var hún einungis 6% þegar kom að því að sjá um reksturinn.

Við sjáum að það er haldið óskynsamlega á þessum málum af hálfu ríkisstjórnarinnar. Og eins og ég segi, herra forseti, það er ekki nóg að byggja ný hjúkrunarheimili. Það verður líka að tryggja forsvaranlegar rekstrarforsendur svo þessi heimili sem eru okkur svo mikilvæg geti sinnt sínu hlutverki. Það er nauðsynlegt að fara alvarlega ofan í saumana á fjárhagsgrunni hjúkrunarheimilanna og rýna betur þær skýrslur sem Ríkisendurskoðun hefur gert um málefnasviðið.

Síðan stöndum við frammi fyrir öðru vandamáli sem er að manna stöður hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á hjúkrunarheimilunum. Formaður sjúkraliðafélagsins hefur t.d. sagt að alvarlegur skortur sé á sjúkraliðum á hjúkrunarheimilunum. Það hefur gert það að verkum að það hefur þurft að vísa frá einstaklingum með mikla þjónustuþörf þar sem ekki fæst heilbrigðisstarfsfólk til starfa. Ástæðan fyrir því að illa gengur að manna þessar stöður er sú að hjúkrunarheimilin hafa setið eftir hvað varðar fjárveitingu til þjónustu undanfarin ár, það er bara þannig. Það er nauðsynlegt að styrkja reksturinn. Þetta er ekki nægileg lausn, þetta er bráðabirgðalausn. Það er verið að gera þetta tímabundið og með einhverjum ákveðnum skilyrðum, að framlengja samninginn fram í febrúar, að mig minnir, á næsta ári. Á sama tíma áttum við okkur á því að það þarf lausn til frambúðar. Hún liggur ekki fyrir. Hvað gerist eftir að þetta framlag rennur út? Hvað þá? Verið er að velta vandanum yfir á næstu ríkisstjórn vegna þess að núverandi ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur ekki tekið á vandanum eins og hún lofaði að gera í stjórnarsáttmála. Það er bara staðreynd málsins og rétt að halda því til haga.

Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu hafa ítrekað bent á það, herra forseti, að nauðsynlegt sé að styrkja rekstur hjúkrunar- og dvalarheimila og endurhæfingarrýma. Á landsbyggðinni er sá rekstur afar þungur. Það kemur m.a. til vegna þess að ómögulegt er að ná fram þeirri stærðarhagkvæmni sem næst með þeim fjölda rúma sem alla jafna þekkist á höfuðborgarsvæðinu eins og við þekkjum. Það verður að eiga sér stað trúverðugt samtal milli fulltrúa heilbrigðisráðuneytisins, Sjúkratrygginga Íslands, öldrunarstofnana og sveitarfélaganna um þetta mál. Því verður haldið til haga hér á komandi vikum og mánuðum að ríkisstjórnin lofaði því að taka á þessum vanda í stjórnarsáttmála en gerði það ekki heldur hleypur til á síðustu metrunum rétt fyrir kosningar og kemur þá með framlag til að sýna fram á að hún hafi einhverjar hugmyndir um að reyna að leysa þetta en getur hins vegar ekki sett fram neina trúverðuga stefnu um með hvaða hætti það er.

Það sem ég vildi nefna næst, herra forseti, eru nokkrar breytingartillögur sem Miðflokkurinn hefur flutt á kjörtímabilinu, bæði hvað varðar fjárlög og fjáraukalög, flestallar, eins og ég segi, fullfjármagnaðar og góðar tillögur. Við vorum með tillögu um að leysa rekstrarvanda hjúkrunarheimila. Því var hafnað. Við vorum með tillögu um heilsueflingu aldraðra, hagræðingu í ráðuneytunum, sem er alveg full þörf á, ríkisbáknið hefur blásið út í tíð þessarar ríkisstjórnar, og við vorum með tillögu um að lækka tryggingagjald um 0,25%, stuðning við störf öryrkja, hækkun á frítekjumarki öryrkja og afnám á skerðingu lífeyrisgreiðslna vegna atvinnutekna. Fjölmargar aðrar tillögur get ég nefnt, tollgæslu og aukið fíkniefnaeftirlit, örugg landamæri, tillögur til að vinna gegn skipulagðri glæpastarfsemi.

Eins og ég segi, Miðflokkurinn hefur flutt yfir 20 breytingartillögur á kjörtímabilinu. Þær hafa allar verið felldar, sem sýnir þann samstarfsvilja sem ríkisstjórnin hefur sýnt, sem hún hefur sjálf kallað eftir. Ríkisstjórnin kallaði eftir samstarfi vegna aðgerða vegna faraldursins og Miðflokkurinn lagði fram sínar tillögur í þeim efnum og við náðum ekki neinum hljómgrunni hvað það varðar. Við sendum hæstv. forsætisráðherra tölvupóst til að reyna að ná eyrum hennar í þessum efnum og því var ekki svarað. Við brugðum á það ráð að auglýsa tillögurnar í fjölmiðlum til að koma þeim á framfæri. Þetta var það sem ríkisstjórnin kallaði eftir en þetta var ekkert nema sýndarmennska, herra forseti, sem hefur einkennt margt á kjörtímabilinu af hálfu ríkisstjórnarinnar. En við í Miðflokknum gefumst ekki upp. Við höfum sett fram og erum að koma á framfæri á næstu vikum tillögum okkar í efnahagsmálum og atvinnumálum og fleiri málum fyrir komandi kosningar og munum leggja fram margar góðar lausnir í þessum efnum.

Ég vildi koma aðeins næst inn á atvinnumálin vegna þess að atvinnuleysið er stærsta verkefnið fram undan. Það er svolítið athyglisvert að fara yfir umsögn sem Samtök atvinnulífsins og ferðaþjónustan sendu um þetta fjáraukalagafrumvarp. Þar kemur fram að samtökin merki aukinn vilja til ráðninga. Það er mjög gott og svo sannarlega vonum við að spá um komu ferðamanna til landsins gangi eftir. Þess er hér getið að eftirspurn eftir ráðningarstyrkjum hafi verið nokkur að undanförnu og það er gott mál. Þann 3. júní síðastliðinn höfðu 9.700 störf verið skráð í átakið Hefjum störf og flest eru þau reyndar tengd ferðaþjónustu. Hér kemur fram að þrátt fyrir sögulegt atvinnuleysi virðist ganga treglega að ráða fólk af atvinnuleysisskrá og það er að sjálfsögðu áhyggjuefni.

Þeir vekja einnig athygli á því að þetta ráðningarstyrkjaferli sem nú hefur verið lagt upp í, sem er ágætisferli og við styðjum það, sé seinvirkt og séu dæmi þess að fyrirtæki ráði inn starfsmenn í gegnum átakið en hafi síðan fengið synjun eftir á hjá Vinnumálastofnun, stofnunin hafi ekki tryggt frá upphafi að starfsmenn uppfylltu skilyrði ráðningarstyrks. Þarna eru hnökrar sem er nauðsynlegt að taka á. Þau segja hér að framkvæmdinni á þessu virðist vera ábótavant. Það er að sjálfsögðu ekki af hinu góða og mikilvægt að bregðast hratt og vel við.

Það verður að segjast eins og er varðandi þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar, sem við í Miðflokknum höfum stutt margar hverjar — þrátt fyrir að á sama tíma hafi ríkisstjórnin hafnað öllum okkar tillögum þá sýnum við samstarfsvilja, en það er nú annað á ríkisstjórnarheimilinu — að það er nauðsynlegt að menn átti sig á því hver árangur af aðgerðunum er og hvað í ferlinu þarf að bæta. Það eru ýmis úrræði sem gengu ekki nægilega vel og lítil eftirspurn eftir þeim. Ég nefni svokölluð brúarlán sem dæmi en annað hefur gengið betur. En auðvitað þarf að liggja fyrir nokkurs konar greining á því hver árangurinn hefur verið og hvað þarf að bæta.

Það sem er hins vegar athyglisvert við þetta er að á fund fjárlaganefndar kom Vinnumálastofnun og fulltrúar hennar vildu meina að það væru eðlilegar ástæður fyrir því að fólk væri að hafna störfum. Hér greinir Samtök atvinnulífsins og Vinnumálastofnun á hvað þetta varðar og auðvitað þarf að reyna að fara betur ofan í saumana á þessu vegna þess að það eru jú heilmiklir peningar sem eru settir í atvinnuleysistryggingakerfið. Kerfið okkar er gott á alþjóðlega mælikvarða og betra en í mörgum löndum. Þess vegna er mjög mikilvægt að menn átti sig á því hvers vegna það er að gerast, ef það á við rök að styðjast, að fólki hafni störfum. Það er eitthvað sem þarf að fara vel yfir og er á verksviði Vinnumálastofnunar.

Hér er líka vert að minnast á einstaka liði í fjármálaáætluninni sem verið er að veita fé í. Ég nefni t.d. að hér er liður sem ég var ekki búinn að minnast á í fyrri ræðu, það er um 120 millj. kr. framlag til Strætó bs. vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins. Mér finnst það svolítið sérstök fjárveiting að því leytinu til að þetta er á könnu sveitarfélaganna og er dæmi um það að þessi málaflokkur er eitthvað sem þarf að fara mun betur yfir. Reynt hefur verið að fjölga í strætó með ærnum tilkostnaði en það hefur ekki gengið eftir og á sama tíma ætla menn að setja tugi milljarða í borgarlínuverkefnið og telja sig geta fjölgað frekar í strætisvögnunum með aðferðafræði sem við í Miðflokknum höfum miklar efasemdir um.

En hér eru líka ágætir liðir eins og fjölskyldumálin sem við styðjum að sjálfsögðu í Miðflokknum, stuðningur við heimilislaust fólk af erlendum uppruna. Ég gerði í minni fyrri ræðu smá athugasemdir við það að tiltaka sérstaklega fólk af erlendum uppruna, við eigum bara að hafa þá sem búa því miður við þær aðstæður að vera heimilislausir undir sama hatti, hver sem uppruni þeirra er. En þetta er nauðsynlegt verkefni og við styðjum það og svo er auk þess stuðningur við hjálparsamtök til að sinna mataraðstoð. Þetta eru að sjálfsögðu mikilvæg verkefni og við styðjum þau.

Ég ætla að segja það í lokin, herra forseti, að fram undan eru náttúrlega miklar áskoranir þegar kemur að hagstjórn í landinu og ég hef áður bent á það. Það er mjög mikill hallarekstur á ríkissjóði og þær aðgerðir og sá pakki sem við erum hér að ræða kemur til með að auka skuldir ríkissjóðs enn frekar, að mig minnir um 8 milljarða kr., þannig að hallinn á ríkissjóði á þessu ári er kominn í 328 milljarða, sem er náttúrlega gríðarlega há upphæð og mikill halli á ríkissjóði ár eftir ár hefur margvíslegar neikvæðar afleiðingar fyrir þjóðarbúið. Þessu er öllu velt yfir á næstu ríkisstjórn og þessi ríkisstjórn hefur verið dugleg að koma með ýmis úrræði núna á síðustu metrunum fyrir kosningar vegna veirufaraldursins og vonandi nýtast þau vel. En sum þeirra held ég að beri svolítinn keim af því að það eru kosningar í nánd, ég held að það sé alveg ljóst. Þau hafa ekki lagt fram neinar áætlanir um tekjubætandi aðgerðir. Það var ekkert að hafa í þeim efnum í fjármálaáætluninni sem ríkisstjórnin lagði fram.

Að lokum, herra forseti, vona ég svo sannarlega, og við í Miðflokknum, að við séum að ná þessari margumtöluðu viðspyrnu. (Forseti hringir.) Það sem skiptir mestu máli er að við náum niður atvinnuleysi og að hjól efnahagslífsins fari að snúast á nýjan leik (Forseti hringir.) og þar munum við í Miðflokknum að sjálfsögðu leggja okkur fram.