151. löggjafarþing — 111. fundur,  10. júní 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[12:57]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir vel flutta og ljómandi góða ræðu. Það er tvennt sem mig langar í þessari atrennu að spyrja þingmanninn út í. Það er annars vegar þetta ágæta dæmi, þessi ferill sem hann fór yfir varðandi samskipti aðila sem eru í einhvers konar einkarekstri í heilbrigðisgeiranum við heilbrigðisyfirvöld. Ég tek svo sannarlega undir með hv. þingmanni að það er eins og öll hugmyndafræði, þegar einstaklingar eru að reyna að búa sér til rekstur í heilbrigðisgeiranum, sé á þann veg að það sé einhvers konar bannorð, sem er ótrúlega sérstakt þegar við þurfum svo sannarlega á því að halda að stækka heilbrigðisþjónustuna og heilbrigðisgeirann á Íslandi. Ég missti því miður af þegar hv. þingmaður fór yfir ágætisdæmi um samskipti varðandi uppbyggingu. Mig langar að biðja þingmanninn að rifja það upp fyrir mig því að ég hreinlega náði því ekki. En það er einmitt mjög gott dæmi um það hvernig hlutirnir eiga ekki að vera.

Hitt sem mig langar að koma inn á er það síðasta sem hv. þingmaður nefndi, breytingartillaga sem hann boðaði hér. Það er náttúrlega með ólíkindum að við upplifum það að ráðherra félagsmála og ráðherra barnamála skuli láta það koma sér á óvart að það séu stórir árgangar á leiðinni. Allt þetta hefur legið fyrir fyrir löngu. Er það ekki, hv. þingmaður, í raun skortur á yfirsýn og jafnvel skortur á vilja, skortur á því að hafa skilning á því að þarna þurfi fjármagn og þarna þurfi að bregðast við? Það vantar ekki yfirlýsingarnar, hv. þingmaður, frá þessum ágætu ráðherrum um hvað þau vilja börnum og öllum öðrum rosalega vel. Glansmyndin, hún er þar en það er eitthvað annað þarna á bak við.