fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir svarið og fyrir að rifja upp. Það er einmitt svo að þótt búið sé að fara í gegnum allt þetta ferli, þó að allir viti að það er neyðarástand á Landspítalanum — við sjáum núna fréttir um að menn telji t.d. að það vanti 500 vaktir hjúkrunarfræðinga út af þeim breytingum sem hafa orðið og það er neyðarástand á bráðamóttökunni. Á sama tíma er samt einhvern veginn ekki hægt að klára þá hluti sem hv. þingmaður bendir hér á. Það er allt klárt, virðist vera, en það vantar bara samninginn til að gera þetta. Þess vegna veltir maður fyrir sér: Er yfirsýnin eða — ég veit hreinlega ekki hvernig ég get orðað þetta — er verkviljinn enginn? Það er svo skrýtið, herra forseti, að sjá þetta aftur og aftur. Að mínu viti hefur heilbrigðisráðherra algerlega brugðist í sínum störfum, sama hvað við erum í rauninni að ræða í þessu ferli. Þetta er vitanlega í boði þeirra flokka sem styðja þennan heilbrigðisráðherra. Þetta er í boði Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Gleymum því ekki að Vinstri græn sáu til þess að skipt var um dómsmálaráðherra. Ágætum dómsmálaráðherra var skúbbað héðan út en Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur slá skjaldborg í kringum heilbrigðisráðherrann sem berst með kjafti og klóm gegn einkaaðilum í heilbrigðisrekstri. Það er alveg sama hvað það heitir, hvort það eru hjúkrunarheimili eða læknastofur eða þeir sem bjóða upp á aðgerðir — nei, af því að það er einka má það ekki ganga. Það er einfaldlega þannig.
Ég ætla ekkert að bæta við spurningu því að ég veit að ég á eftir að fá svar við seinni spurningu minni. Ég ítrekaði það áðan að það er algerlega óboðlegt að láta svona hluti koma sér á óvart. Það má ekki skilja okkar (Forseti hringir.) frábæra fólk, þessi 30 fötluðu ungmenni sem um var talað, eftir, herra forseti.