fjáraukalög 2021.
Virðulegur forseti. Við erum komin í 2. umr. fjáraukalaga í lok kjörtímabils sem hefur að mörgu leyti verið mjög sérstakt. Vitanlega hefur hluti af tímabilinu einkennst af þessum faraldri sem við höfum verið að glíma við en sem betur fer sjáum við fyrir endann á því. Hægt er að eyða töluvert löngum tíma í að fara yfir hvernig stjórnvöld hafa haldið á þeim málum, þ.e. ríkisstjórnin. Það mætti gagnrýna töluvert. Ég ætla reyndar að leyfa mér að segja að það er ýmislegt sem sóttvarnayfirvöld mega líka fá gagnrýni fyrir en þar er fólk að reyna að gera sitt besta, fólk sem er sérfræðingar, en auðvitað má alveg hafa skoðanir á því hvort þar er haldið rétt á hlutum. Það er enginn það háttsettur að slíkt megi ekki.
Hér hefur verið farið yfir fjáraukann eins og hann liggur fyrir og ákveðnar breytingartillögur eru lagðar fram, bæði af hálfu meiri hluta og minni hluta og boðuð hér ný breytingartillaga sem hv. þm. Jón Steindór Valdimarsson fór yfir. Það er athyglisvert og ég vitna til orða hv. þm. Birgis Þórarinssonar sem fór yfir það að Miðflokkurinn hefði margreynt að leggja fram tillögur sem allar hefðu verið felldar um breytingar á fjárlögum og fyrri fjáraukum. Það lýsir í raun andrúmsloftinu sem er í þinginu og hversu mikið bull það er þegar ríkisstjórnin skrifar inn í stjórnarsáttmála að efla eigi þingið og breyta hlutum, eitthvað slíkt. Það hefur ekkert breyst. Það eina sem hefur kannski breyst er að við höfum verið með afar aðgerðalitla ríkisstjórn sem hefur fyrst og fremst verið í því að bregðast við hlutum en ekki að leggja fram framtíðarsýn eða stefnu, enda held ég að það gæti orðið erfitt fyrir þessa flokka að koma sér saman um einhverja framtíðarsýn, svo að ég segi það nú bara eins og er. Það hefur komið í ljós í öðru máli, sem við förum yfir á næstu dögum, að ríkisstjórnin gerir ráð fyrir að starfa áfram. Að sjálfsögðu þurfum við að sjá til þess að svo verði ekki, enda höfum við séð að sú glansmynd sem reynt er að draga upp er vitanlega ekki til staðar. Hér hafa menn vitnað til hástemmdra yfirlýsinga og auglýsinga, prófkjörsauglýsinga, þar sem segir að ef menn vilji frelsi, frelsi í hinu og frelsi í þessu, frelsi í heilbrigðisþjónustu, þurfi að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Samt hefur líklega aldrei verið jafn sósíalískt kerfi í heilbrigðisgeiranum á Íslandi og akkúrat núna, í boði Sjálfstæðisflokksins. Við skulum muna það þegar leiktjöldin eru tekin niður hvað stendur þá í rauninni eftir.
Við ræðum hér fjárauka á sama tíma og við sjáum mörg merki um að ákveðinn órói er fram undan. Vextir hafa hækkað, verðbólgan hefur farið upp. Á sama tíma er ákveðinn snúningur að verða í efnahagsmálum með tilkomu ferðamanna. Vonandi fer það svona hægt og rólega af stað og með haustinu verður vonandi kominn aðeins meiri kraftur í þetta. En þá höfum við hins vegar enga sýn um það hvernig ríkisstjórnin sem nú situr ætlar að fara inn í næsta kjörtímabil og við hljótum eðlilega að gera þá kröfu að sú sýn komi fram núna á næstu vikum hér í þinginu. Þegar það er orðið ljóst að þau ætla sér að vinna áfram, fái þau til þess stuðning, er eðlilegt að kalla eftir slíku.
Fram undan er uppbygging á Íslandi. Það þarf að byggja upp og byggja undir efnahagsvöxtinn, það þarf að styrkja stoðirnar og við þurfum líka að læra það að ótrúlegustu hlutir geta gerst í okkar efnahagslífi, í okkar umhverfi. Hér kom faraldur og setti stærstu atvinnugrein okkar á þeim tíma á hliðina. Það geta að sjálfsögðu líka komið upp vandamál í náttúrunni þannig að við þurfum að horfa til þess hvað gerist ef við lendum í vanda með okkar sjávarútveg, þ.e. fiskstofnana í sjónum. Hvað gerum við þá? Við þurfum að stækka mjög þá körfu sem við erum með og búum við hér á Íslandi. Við þurfum að sjá til þess að í okkar framtíðarplönum, eða í þeirri stefnu sem er boðuð, sé horft til þess að efla nýsköpun og menntun en ekki þetta innihaldslausa tal um menntunina sem er svo áberandi í dag hjá þessari ríkisstjórn heldur raunverulega stefnu, raunveruleg viðbrögð. Við þurfum að horfa til þess að það er staðreynd, eins og margoft hefur komið fram, að enginn í ríkisstjórninni virðist hafa áhuga á að bregðast við því, það kemur alla vega ekki fram í þeirri menntastefnu sem hér hefur verið minnst á, að drengir eiga í töluverðum vandræðum í skóla. Það verður að bregðast við því. Það er ekki þannig að við getum sett 20 krakka í bekk, kallað það skóla án aðgreiningar, en reynt svo að gera alla eins og allir eigi að vera í sama boxinu. Það eru mjög miklar líkur á því að í þessum 20 manna hópi séu einhverjir sem vilja verða og munu verða iðnaðarmenn eða sjómenn eða bændur, aðrir verða læknar eða kennarar eða eitthvað annað og við eigum strax að reyna að sjá út hvert hugur þessa unga fólks okkar stefnir, ekki reyna að setja þau öll á sama stað sem er gert í dag. Það er þannig.
Þetta var smáútúrdúr en tengist samt málinu, tengist því að við þurfum að laga þessi fjáraukalög. Við þurfum að taka þá fjármuni sem hv. þm. Jón Steindór Valdimarsson ræddi hér, og boðaði breytingartillögu. Við þurfum að rétta hlut þessara 30 ungmenna sem menntamálaráðherra og félags- og barnamálaráðherra settu út í kuldann. Það er verkefnið. Ég hef nú reyndar trú á því, herra forseti, að félags- og barnamálaráðherra sé það annt um nýju ímyndina að hann muni styðja þetta ötullega og vona ég það svo sannarlega því að þetta er þannig mál að þarna á pólitík ekki að ráða för eða glansmynd heldur raunveruleg þörf fyrir þessa fjármuni til að hjálpa skjólstæðingum okkar, þessu góða fólki.
Ég ætla að fagna því að samkvæmt breytingartillögu meiri hlutans við fjáraukalögin sé verið að setja aukna fjármuni til hjúkrunarheimilanna eða í hjúkrunarrými. Það þarf hins vegar meira til. Og takið eftir, þetta er fjáraukalagafrumvarp. Það þarf að klára samninga til framtíðar við þessa gríðarlega mikilvægu aðila í okkar samfélagi. Það þarf að viðurkenna þann kostnað sem hvert rými kostar á hjúkrunarheimilunum. Það þarf að viðurkenna að þarna er verið að veita mjög góða þjónustu. Það á að sjálfsögðu, og ég veit að þeir aðilar sem eru í þessum geira hræðast það ekki, að gera gæðakröfur og þess háttar og auðvitað eiga sömu kröfur líka að gilda hjá ríkisstofnunum. Það á ekki að vera neitt öðruvísi, á að vera algerlega það sama. Ef menn eru með eitthvert úttektarbatterí eða eitthvað slíkt í gangi í tengslum við þetta, ég viðurkenni að ég kann það nú ekki, þá á að sjálfsögðu að vinna í báðar áttir.
Það er vitanlega erfitt að horfa upp á það hvernig hlutirnir hafa farið á þessu kjörtímabili vegna þess að ríkisstjórnarflokkarnir eru þetta ólíkir. Það er stanslaust verið að gefa eftir í einhverjum málum og úr verður einhvers konar svona grámi, stefna sem er eins og skúringarvatn á litinn eða eitthvað slíkt, bara grátt og frekar óspennandi, í stað þess að vera með stefnumál sem eru augljós og menn geta unnið að. Oftar en ekki komast málin ekki í gegnum þingið vegna óeiningar innan stjórnarmeirihlutans og það er eitthvað sem er líka til umhugsunar hvort menn vilja taka fleiri ár í því umhverfi að hafa í rauninni óstarfhæfa ríkisstjórn eða illa starfhæfa, ég vil orða það þannig. Hér er búið að slá af nokkur þingmál sem á ekki að klára. Það kom hér fram í einhverju spaugi að ríkisstjórnin væri eins og biðflokkurinn í rammaáætlun, það væri bara allt óþægilegt sett þar. Það kemur ekkert þaðan út af viti, það er bara allt sett í bið. Menn þurfa að hugsa sig vandlega um, myndi ég segja, ef þeir ætla að kjósa þessa biðflokka.
Hv. þm. Birgir Þórarinsson fór ágætlega yfir sýn Miðflokksins á þetta fjáraukalagafrumvarp og er ljóst að fjármál ríkisins hefðu mátt fara betur allt kjörtímabilið. Hv. þm. Björn Leví Gunnarsson fór líka ágætlega yfir það hvernig kerfið virkar og skort á því að upplýsingar séu lagðar á borðið og að valmöguleikar, ef þeir eru til staðar, sem stjórnarflokkarnir eru með á sínu borði þegar verið er að ákveða hvaða leið skuli farin, séu einnig sýndir þinginu, þingnefndum í það minnsta. Ég tek undir það með hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni að það myndi hjálpa mjög vel til. Þetta er eitthvað sem við þurfum að horfa til til framtíðar, held ég, að koma með málin miklu betur undirbúin inn í þingið, mögulega með meiri kynningu fyrir þingmenn áður en þau koma fram og gefa þeim lengri tíma. En það er einhvern veginn lenskan hér á Íslandi, og hefur verið þessi 12 ár sem ég hef setið á þingi, að þetta er meira og minna unnið í einhverjum flýti og þar af leiðandi geta því miður orðið einhver óhöpp, menn gera mistök. Auðvitað koma menn aldrei í veg fyrir mistök en það má reyna að minnka þau.
Í breytingartillögum meiri hlutans eru nokkur atriði talin upp sem er verið að setja aukna fjármuni í. Sumt er þekkt og er tengt þessum faraldri en annað kannski óbeint eða ekki tengt og verið að reyna að plástra hlutina. Hér er talað um 1 milljarð í daggjöld hjúkrunarheimila sem er að sjálfsögðu gott. Það er mjög gott að það skuli koma loksins. En það hefur verið alveg ótrúleg barátta að fá þennan milljarð og auðvitað eiga stærstan heiðurinn þeir aðilar sem eru í atvinnugreininni, en einnig hafa þingmenn að sjálfsögðu lagt sitt lóð á vogarskálarnar til að þetta gangi, til að meiri hlutinn opni augun og bregðist við.
Framlög til geðheilbrigðismála hækka um 600 milljónir og ber að sjálfsögðu að fagna því. Það er ekki gott hvernig við höfum haldið á þeim málaflokki undanfarin ár og við þurfum að setja mikinn kraft í að efla okkur og finna bestu leiðir í geðheilbrigðismálum. Þarna þurfum við að sjá til þess að þeir aðilar sem eru skjólstæðingamegin, ég ætla að orða það þannig, og þeir aðilar sem eru sérfræðingamegin tali saman og við förum í það að finna eins gott kerfi eða umhverfi og við mögulega getum. Þetta eru oft og tíðum skelfilegir sjúkdómar en margt er hægt að ráða við og lækna og bæta umhverfið og gera fólki lífið léttara. Við eigum að sjálfsögðu að gera það eins mikið og við getum, en til þess þarf vilja, til þess þarf peninga, fjármuni, sérfræðinga. Við eigum að mennta fleiri sérfræðinga á sviði geðheilbrigðisvísinda og við eigum að búa til einhvern hvata í því. Biðlistar eru allt of langir og viðbrögðin, held ég, oft og tíðum allt of sein.
Hér er verið að bæta upp tekjutap Landsbjargar og Rauða krossins. Hér er framlag til þróunar og dreifingar bóluefnis til þróunarríkja, að sjálfsögðu mjög gott mál og mikilvægt að við látum ekki standa á okkur að efla það. En ég ætla samt að nefna að það er vitanlega algjörlega með ólíkindum, herra forseti, að verið sé að setja 120 milljónir í borgarsjóð vegna Strætó, 120 milljónir á að setja í Strætó. Er það virkilega orðið þannig, herra forseti, að ríkissjóður sé búinn að taka að sér að reka Strætó eða koma að rekstri hans? Er það forsmekkurinn að þessari vitlausu borgarlínu að ríkissjóður ætli að vera með rekstrarframlög ár hvert? Er þetta forsmekkurinn sem við erum að horfa á með þessar 120 milljónir? Þetta er svipuð upphæð sem á að setja í Strætó og þarf til að þessi 30 fötluðu ungmenni komist í þá skólavist sem þau vilja og þurfa. Hér ætlar ríkisvaldið hins vegar að taka það að sér að styrkja Strætó. Það er öllum ljóst að það er lítill áhugi á að nýta sér þessar samgöngur eins og þær eru. Það verður því miður að segjast eins og er, herra forseti. Hugsanlega er hægt að laga þetta og breyta því með einhverjum hætti en það þarf að gera það.
Hér eru líka settar 20 milljónir í styrkingu á réttindagæslu fatlaðra sem er jákvætt, en ég minni enn og aftur á þessi 30 ungmenni en talið er að það þurfi 110 milljónir samkvæmt breytingartillögunni til að hjálpa þeim og koma þessu á rétt ról.
Síðan er hér rætt um verkefnið Hefjum störf sem er ágætishugsun. Ég vona að það virki því að ég hef heyrt, það hefur verið komið að máli við einhverja þingmenn, að það sé einhver ótti um að þetta henti kannski ekki alveg fólki í dag. Svo þarf líka að liggja fyrir hvað gerist þegar öll þessi úrræði renna út. Þau eru með ákveðnum tímamörkum. Hvað gerist t.d. núna við kosningar eða í september? Ég man ekki alveg dagsetningar á þessu svo ég segi það nú bara hreint út. En það er mjög mikilvægt að það verði ekki eitthvert tómarúm, einhver óvissa fyrir þá einstaklinga sem þarna eru.
Við þurfum að setja kraft í það að búa til störf. Það gerum við með því að auðvelda einkageiranum, fyrirtækjunum, einstaklingunum sem eru að skapa eitthvað, að búa til fyrirtæki sem þurfa að ráða til sín mannskap. Við verðum að hafa skattumhverfið þannig að það sé hvetjandi en ekki letjandi. Við eigum að hafa stuðningskerfið þannig fyrir fyrirtæki að það sé hvetjandi en ekki letjandi eða fæli frá eða sé svo flókið að það þurfi sérfræðikunnáttu til að sækja þar stuðning ef þú ert með einhverjar góðar hugmyndir. Við eigum að hvetja frumkvöðla áfram og við eigum líka að styrkja eða búa til hvatningu fyrir alla þá sem hafa góðar hugmyndir, eins og ég vildi segja áðan. Ekki síst væri gaman að sjá að sérstök aukning yrði í nýsköpunarverkefnum hjá konum og ungu fólki því að þar held ég að sé stór hópur, þó að mikið hafi fjölgað í þeim hópi, sem hafi kannski ekki endilega fundið réttu brautina. Við eigum að horfa á það. Það er fullt af tækifærum á Íslandi og við höfum sýnt það, t.d. í sjávarútveginum. Þegar sjávarútvegurinn er orðinn traustur, þegar hann er stór og öflug atvinnugrein með mikla veltu, þá er mikið fjárfest í tækjum og tæknibúnaði. Þannig verða til hundruð starfa eða þúsundir starfa. Það eru gríðarlega öflug fyrirtæki í hliðargreinunum í sjávarútvegi sem eru að framleiða tæki og tól og miðla af reynslu og selja fyrir milljarða króna og búa til útflutningstekjur fyrir okkur með því að flytja út þessi tæki og tól sem hafa orðið til, mörg hver, í samstarfi og tengslum við hinn öfluga og frábæra íslenska sjávarútveg.