fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Við ræðum hérna fjáraukalög fyrir árið 2021. Það er eru nokkur atriði sem ég vildi víkja að í ræðu minni, þar á meðal samgöngumál, hjúkrunarheimilin, vanfjármögnun á almannatryggingum, atriði af því tagi. En fyrst vildi ég nefna að það er ákaflega gagnlegur kafli í frumvarpinu þar sem er fjallað um hlutverk fjáraukalaga. Þar segir, með leyfi forseta:
„Með lögum um opinber fjármál er mörkuð skýr stefna um hlutverk og efni fjáraukalaga. Í því felst að gert er ráð fyrir að allar fyrirsjáanlegar fjárráðstafanir komi fram í fjárlögum en að í fjáraukalögum verði einungis leitað heimilda til að bregðast við útgjaldatilefnum sem voru ófyrirséð við afgreiðslu fjárlaga en sýnt þyki að útgjöldin falli til á árinu og að ríkissjóður komist ekki hjá að greiða þau. Fjáraukalögum er þannig einungis ætlað að taka til óhjákvæmilegra útgjalda af fyrrgreindum toga, þar á meðal vegna áhrifa nýrrar löggjafar á árinu, sem ekki er unnt að bregðast við með öðrum hætti samkvæmt lögum um opinber fjármál, svo sem með millifærslu fjárveitinga milli aðila og verkefna innan sama málaflokks á fjárhagsárinu eða nýtingu varasjóðs viðkomandi málaflokks eða almenns varasjóðs til að mæta auknum útgjöldum. Fjáraukalögum er því ekki ætlað að mæta útgjöldum til nýrra verkefna, aukins umfangs starfsemi eða rekstrarhalla einstakra málefnasviða og málaflokka umfram setta útgjaldaramma, enda ber samkvæmt lögunum að vísa slíkum tillögum um breytingar á fjárheimildum til umfjöllunar um fjárlög fyrir næsta fjárhagsár. Markmiðið með þessu verklagi er að auka ábyrgð ráðuneyta á áætlanagerð, stefnumótun og fjármálastjórn innan málefnasviða og málaflokka og draga úr þörf og umfangi fjáraukalaga.
Við undirbúning frumvarpsins hefur verið lögð áhersla á að standa að málum í samræmi við hlutverk fjáraukalaga eins og það er skilgreint í lögum. Efni þessa frumvarps afmarkast nær alfarið við fjármögnun á áframhaldandi efnahagsaðgerðum sem er ætlað að bregðast við efnahagslegum og samfélagslegum afleiðingum heimsfaraldurs kórónuveiru.“
Herra forseti. Þessi kafli vekur upp spurningu um vinnubrögð og ég verð að viðurkenna að ég hef verið mjög hugsi yfir ræðu hæstv. dómsmálaráðherra við umræður um fjármálaáætlun 2022–2026. Þær umræður fóru fram 25. mars síðastliðinn. Þá svaraði hæstv. ráðherra andsvari hv. þm. Þorsteins Sæmundssonar varðandi fjármögnun til málaflokksins varðandi umsækjendur um alþjóðlega vernd. Þá segir hæstv. ráðherra í svari við spurningu frá hv. þingmanni um fjármögnun til þessa málaflokks, með leyfi forseta:
„Varðandi fjármunina sem fara í þennan málaflokk þá er þetta svolítið ófyrirsjáanlegt og erfitt að gera áætlanir fram í tímann um það hve margir leita hér eftir alþjóðlegri vernd. Það hefur verið tekin ákvörðun um að fjármagna samkvæmt raunútgjöldum í stað þess að ofáætla í fjárlögum og þess vegna er erfitt að áætla það til lengri tíma.“
Herra forseti. Þessi orð vekja ýmsar spurningar; í fyrsta lagi á hvaða vettvangi sú ákvörðun sem þarna er vísað til hafi verið tekin og sömuleiðis hvernig hún samræmist þeirri stefnumörkun um opinber fjármál og beinum fyrirmælum sem rakin eru í frumvarpinu og ég var að ræða áðan í lögum um opinber fjármál. Það væri auðvitað mjög æskilegt að fram kæmu skýringar á þessari ákvörðun sem þarna er vitnað til. Þetta er dæmi um málaflokk sem virðist hugsanlega sæta sérstakri meðferð þegar kemur að fjármálalegum ákvörðunum.
Herra forseti. Tekin er ákvörðun um það núna að verja aukalega til hjúkrunarheimila 1 milljarði. Í áliti meiri hluta fjárlaganefndar segir, með leyfi forseta:
„Meiri hlutinn fjallaði ítarlega um málefni hjúkrunarheimila í áliti sínu um nýsamþykkta fjármálaáætlun. Þar var m.a. fjallað um nýlega skýrslu um afkomu heimilanna sem byggðist á greiningu uppgjöra áranna 2017–2019 og fyrri helmingi ársins 2020. Í skýrslunni kom fram að mörg heimilanna hafa verið rekin með halla undanfarin ár.“ — Þetta náttúrlega er viðvarandi vandi og árviss viðburður að fjallað er um þetta atriði, þennan rekstrarvanda og rekstrarhalla á hjúkrunarheimilum. — „Árið 2019 var samanlagður halli þeirra sem voru rekin með tapi rétt tæpur milljarður kr. Ákveðið vanmat kemur þó fram í þeim tölum þar sem framlög sveitarfélaga eru talin til tekna heimilanna auk daggjalda frá ríkissjóði.“ — Þarna er atriði sem vegur auðvitað þungt í þeirri skýrslu sem hér er til umræðu og kennd er við formann starfshópsins sem vann skýrsluna, Gylfa Magnússon prófessor, og talað um Gylfa-skýrsluna. — „Árið 2019 náðu einungis 13% heimilanna jákvæðri rekstrarafkomu án greiðslna sem sum þeirra fá frá sveitarfélögum.“
Þessi umfjöllun vekur upp spurningar um framtíðarstefnumörkun í þessum málaflokki og það liggur náttúrlega ljóst fyrir og er mjög vel þekkt staðreynd að öldruðum mun fara fjölgandi á komandi árum og áratugum. Ekki síst mun háöldruðum, áttræðum og eldri, fara mjög hratt fjölgandi. Það mun þýða að það sem kallað er hjúkrunarþyngd á hjúkrunarheimilum og annars staðar þar sem fólk nýtur hjúkrunar, mun fara vaxandi. Það kallar á fleira starfsfólk með sérmenntun og gerir rekstur þessara stofnana kostnaðarsamari fyrir vikið. Það verður að segjast, herra forseti, að það vantar fullnægjandi stefnumörkun, þótt það beri að meta þennan milljarð. En til að gæta allrar sanngirni þá segir í álitinu, með leyfi forseta:
„Enn ber of mikið á milli í túlkun og greiningu á skýrslu um hjúkrunarheimilin. Sérstaklega vantar á að liggi fyrir fullnægjandi greining á mismunandi kostnaði á milli heimila. Heilbrigðisráðuneytið hefur upplýst nefndina um nokkra þætti sem þarf að vinna betur, eins og um færslu kostnaðar vegna húsnæðis og hvernig hann fellur að daggjaldagrunninum.“
Þetta er náttúrlega á stofnanamáli í öndvegisflokki, sem svo mætti kalla.
Það er sömuleiðis rakið í áliti meiri hlutans að á örfáum árum hafi meðhöndlun, eins og það er orðað, heimilismanna orðið þyngri og mikilvægt að geta fylgt því eftir með meiri sérhæfingu í umönnun. Það er rakið að meiri hlutinn hafi á undanförnum þremur árum hækkað í tvígang framlög til heimilanna. En það sem vantar upp á hér er stefnumörkun. Það er gagnlegt að vera búinn að fá þessa skýrslu um rekstrarkostnað heimilanna og ágætt að áfram verði unnið með þær upplýsingar sem þar koma fram. Þarna er sérstaklega fjallað um færslu kostnaðar vegna húsnæðis og hvernig hann fellur að daggjaldakerfinu.
Síðan er náttúrlega annað uppi í þessu efni og það eru þær kröfur sem gerðar eru til þessara heimila. Þar er eins og ekki fari alltaf saman hljóð og mynd varðandi þær kröfur, annars vegar faglegar kröfur — við þekkjum kröfur sem gerðar eru af hálfu embættis landlæknis og heilbrigðisráðuneytisins og þessar kröfur — og hins vegar daggjöldin sem virðast ekki haldast nægilega vel í hendur, svo vægt sé til orða tekið.
Ef ég gríp örstutt niður í skýrsluna er þar fremst útdráttur. Þar er rakið að skýrslan sé samin af svokallaðri verkefnastjórn sem heilbrigðisráðherra skipaði til að greina rekstrarkostnað hjúkrunarheimila og greint frá því á hvaða gögnum skýrslan sé reist, þ.e. á svörum rekstraraðila heimilanna við fyrirspurnum. Spurt var um einstakra kostnaðar- og tekjuliði, þá þjónustu sem veitt er og þá sem þiggja hana, m.a. hjúkrunarþyngd og ýmsar breytur sem snúa að húsnæði, rekstraraðila, staðsetningu og öðrum þáttum. Það er rakið að þær upplýsingar sem liggja til grundvallar séu fyrir árin 2017–2019 og fyrri helming ársins 2020.
Þá segir, með leyfi forseta:
„Við greininguna var fyrst og fremst horft til hjúkrunarheimila sem rekin eru fyrir daggjöld og fengust svör frá 40 slíkum. Af þeim voru 19 rekin af sveitarfélögum en 21 í félagaformi, þ.e. af sjálfseignarstofnun, einkahlutafélagi eða félagasamtökum. Þau sem sveitarfélög reka voru að jafnaði mun smærri en þau sem rekin voru í félagaformi og hlutdeild sveitarfélaga í fjölda rýma því mun lægri en í fjölda hjúkrunarheimila.
Hjúkrunarrýmin voru nokkuð mismunandi að stærð. Einbýli voru langalgengust (83%) en einnig nokkuð um tvíbýli. Þríbýli þekkjast einnig enn en eru mjög fá.“
Þarna er áhugaverður punktur þar sem segir að þótt tímabilið sem er til skoðunar hafi verið stutt breytist aldurssamsetning íbúa nokkuð innan þess. Þannig fjölgaði sérstaklega í elsta hópnum, 90 ára og eldri, og meðalaldur hækkaði. Það virtist m.a. koma fram í aukinni hjúkrunarþyngd og þar með hækkandi rekstrarkostnaði.
Það er í raun og veru ekkert sem kemur á óvart hérna. Við erum auðvitað að tala um þekktar lýðfræðilegar staðreyndir. Við erum að tala um þekktar staðreyndir úr hjúkrunarfræðum þar sem fjallað er um þetta hugtak sem ég hef nefnt og er nefnt í þessum plöggum sem ég vitna til, þ.e. hjúkrunarþyngd.
Áfram segir að spáð sé verulegri fjölgun elstu íbúa landsins næstu áratugi, t.d. tvöföldun þeirra sem eru 80 ára og eldri á tímabilinu 2020 til 2040.
Ég leyfi mér að nefna að hér erum við að tala um alvöruvísindi sem eru hin lýðfræðilegu vísindi sem eru vísindi sem standa á mjög traustum grunni og byggja á manntölum og öðrum gögnum. Þessi fjölgun aldraðra er alveg þekkt í heimi þessara fræða og þá sérstaklega fjölgun hinna háöldruðu. Þetta er þrautrannsakað fyrirbæri á alþjóðlega vísu og þegar maður kynnir sér þessi fræði kemst maður að raun um að þetta er þróun sem staðið hefur yfir á heimsvísu áratugum saman, jafnvel í heila öld. Það er alveg útilokað annað en að við stefnumótun í þessum málaflokki taki menn mið af því.
Herra forseti. Ég ætlaði að víkja að öðru atriði sem eru samgöngumál. Það er ákveðin sérstök fjárveiting upp á 120 milljónir vegna halla á Strætó og ég verð að viðurkenna að ég hef áhyggjur af því, eins og reyndar fleiri hv. ræðumenn á undan mér, og þetta vekur upp spurningar um hið einkennilega samband sem virðist vera á milli ríkissjóðs annars vegar og fyrirætlana um svokallaða borgarlínu hins vegar. Nú er það svo að það mælir því enginn í mót að það er sjálfsagt mál að greiða fyrir almenningssamgöngum, ég held að það sé enginn ágreiningur um það. Hitt er annað að við stöndum frammi fyrir fyrirætlunum sem virðast mjög litaðar af stjórnmálalegri afstöðu, jafnvel, ef maður leyfir sér að segja eins konar trúarafstöðu, sem birtist m.a. í því að ekki liggja fyrir neinar raunhæfar áætlanir um kostnað við þessa framkvæmd. Slegið hefur verið fram tölum eins og 70, 80 milljörðum, 100 milljörðum og öllum þeim sem fjallað hafa um þetta mál, t.d. í fjölmiðlum, fjölmargir kunnáttumenn hafa blandað sér í þessa umræðu, verkfræðingar með sérþekkingu á samgöngumálum og hagfræðingar, og þeim ber saman um að þessar tölur, miðað við þær áætlanir sem liggja fyrir, séu vanáætlun. Um hitt er ekki deilt að það liggur engin rekstraráætlun fyrir um þetta verkefni.
Nú stendur þannig á, herra forseti, að á höfuðborgarsvæðinu er verkefni sem blasir við, sem er lagning Sundabrautar, sem er augljóslega arðbær og gagnleg framkvæmd sem mun náttúrlega greiða fyrir samgöngum. Hún mun tengja höfuðborgarsvæðið við Vesturland og Norðurland í miklu meira mæli en nú er og mun þar að auki auka öryggi íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Það er til vansa að ekki skuli vera ráðist í þetta verkefni án tafar. Ég lít þannig á að það jaðri við tímasóun að fjalla um þessa borgarlínu en verð þó að geta þess að áhugamannasamtök hafa lagt fram aðrar tillögur í því og ég vek athygli á þeim. Þessi samtök kalla sig ÁS.