fjáraukalög 2021.
Hæstv. forseti. Eins og forseti sagði þá höldum við áfram umræðu um fjáraukalög. Ég ætla að leggja út af þeim punkti sem var ræddur hér, um hjúkrunarheimili og stöðu þeirra. Ég ætla jafnvel að fara aðeins út í að ræða hvernig við mætum rekstrarvandanum því að hann er gríðarlegur. Þá meina ég sérstaklega þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir varðandi mönnun, hvernig við ætlum að manna bæði dvalar- og hjúkrunarheimili. Ég vil þó byrja á því að segja að við höfum lagt fram yfir 20 breytingartillögur á þessu kjörtímabili við ýmis fjáraukalög sem hafa komið fram á færibandi. Mér finnst mikilvægt að það komi fram að þær eru allar fullfjármagnaðar en þær hafa allar verið felldar. Það eru sjálfsagt flokkslínur sem skýra það mun frekar en innihald tillagnanna.
Ef við ræðum um hjúkrunarheimilin þá standa þau frammi fyrir miklum vanda. Einn milljarður var settur í að mæta hallarekstri sem hefur verið viðvarandi undanfarin ár. Það mun sjálfsagt ekki slá nægilega mikið á þann vanda sem við stöndum frammi fyrir til framtíðar, þ.e. rekstrarvandann. Við lögðum fram tvær tillögur vegna rekstrarvanda hjúkrunarheimilanna á síðasta þingi og voru það 800 milljónir sem við ræddum um þar. Sú tillaga var fullfjármögnuð en hún var felld. Það er leiðinlegt að málið skyldi enda á þann veg. Við verðum að hafa í huga að hjúkrunarheimilin eru mjög mikilvæg stoð í íslenska velferðarkerfinu og þess vegna voru þessar tillögur lagðar fram.
Það er áhugavert að rýna í skýrslu Ríkisendurskoðunar sem bent hefur á að rekstur hjúkrunarheimila sé mjög þungur. Það hefði því ekki átt að koma ríkisstjórninni á óvart að bregðast þyrfti við. Það má halda því fram að róðurinn hafi þyngst allverulega frá því að Sjúkratryggingar Íslands ákváðu að breyta aðferðafræði varðandi útgreiðslu fjármagns til þessara hjúkrunarheimila. Það var í raun gert án þess að ræða við eða hafa samráð við hjúkrunarheimilin og þá rekstraraðila sem eru þar. Ég nefni sem dæmi Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu og Samband íslenskra sveitarfélaga sem ítrekað bentu á að þetta væri ekki nægilega vel unnið og myndi í raun ekki skipta máli.
Um leið og við ræðum um að fjölga þurfi hjúkrunarrýmum þarf líka að tryggja reksturinn. Til að við getum staðið vel að því að tryggja reksturinn þurfum við líka að huga að því hvernig við aukum fagmenntun innan þessara heimila. Formaður sjúkraliðafélagsins hefur á undanförnum misserum verið dugleg við að benda á að skortur sé á sjúkraliðum á heimilunum og jafnvel á sjúkrahúsum og heilbrigðisstofnunum yfirleitt og að það stefni í óefni hvað það varðar. Það hefur sannarlega þurft að vísa frá einstaklingum sem hafa mikla þjónustuþörf vegna þess að skortur er á fagmenntuðu starfsfólki. Það er auðvitað vegna þess að fjármagn vantar til að standa undir rekstrinum og þar með fagmenntuðu starfsfólki. Við getum ekki sætt okkur við það að annað slagið sé verið að setja inn slatta af fjármunum án þess að einhver heildarsýn sé fram undan.
Í þessu sambandi langar mig sérstaklega að minnast á öldrunar- og hjúkrunarheimili á landsbyggðinni. Við vitum það sem höfum átt ættingja inni á þessum heimilum að þegar þeir kveðja þetta líf hafa aðstandendur u.þ.b. þrjá sólarhringa til að hreinsa herbergið og taka til. Þar af leiðandi er fullmikill asi á þessu en það stafar af illri nauðsyn vegna þess að greitt er fyrir hvert legupláss. Það skiptir hjúkrunarheimilin því afar miklu máli að þau séu sem best nýtt. Ég hef heyrt aðstandendur ræða þetta og einnig þá sem vinna á hjúkrunarheimilunum og fólki þykir leitt að þetta þurfi að vera svona. Stundum hefur mönnum dottið í hug að einhvers konar skiptirými ætti að vera til inni á hjúkrunarheimilum, að þeim sé skipt niður í deildir þannig að þetta þurfi ekki að gerast með þessum hraða. Ég er nokkurn veginn sannfærð um að þetta ætti að vera hægt ef við hefðum fleiri rými í grunninn.
Við vitum líka að oft eru það konur sem vinna á þessum heimilum. Þær eru margar hverjar komnar yfir miðjan aldur og glíma við ýmis stoðkerfisvandamál. Þær eiga þar af leiðandi dálítið erfitt með að sinna fullri vaktavinnu, enda sýnir það sig að meiri hluti þeirra sem starfa á þessum heimilum er ekki í 100% vinnu. Þrátt fyrir allt hefur verið unnið að því að greina vandann en hugsanlega erum við enn á byrjunarreit þar. Við mættum gjarnan vera komin miklu lengra. Þá er ég sérstaklega að ræða um menntun sjúkraliða og menntun hjúkrunarfræðinga og ekki síst menntun félagsliða. Það hefur komið fram að þeir sem dvelja á hjúkrunarheimilum, gamla fólkið, er orðnir hrumari en var fyrir einhverjum árum þannig að talað er um að félagsliðar hafi kannski ekki þá menntun sem í raun þarf til að geta sinnt þessum allra veikustu eldri íbúum. Því sé enn meiri þörf fyrir að fjölga sjúkraliðum. Nú er hafið nám fyrir sjúkraliða sem vilja ná sér í diplómagráðu í áttina að hjúkrunarfræði, sem er allt mjög gott.
Ég ítreka að þetta gengur kannski fullhægt. Settur var af stað hópur til að velta upp hverjum steini hvað varðar menntun og viðbótarmenntun sem gæti leitt til fjölgunar útskrifaðra sjúkraliða. Þetta er sett niður í nokkrar tillögur sem eiga að ná yfir tíu ára tímabil, átaksverkefnið er sem sagt til tíu ára. Ég ætla að leyfa mér að fara hér yfir þær tillögur sem lagðar eru til grundvallar, en fyrst og fremst er talað um að bjóða þurfi námsstyrki til ófaglærðra starfsmanna. Mig langar að fara inn á þetta vegna þess að þetta snýst kannski að mestu leyti um krónur og aura, hvernig við getum staðið við það að setja slíka áætlun fram og setja það í samhengi við fjölgun á þeim sem munu þurfa að dveljast á hjúkrunarheimilum eða fá þjónustu heima hjá sér. Allt helst þetta í hendur. Það þarf að bjóða námsstyrk til ófaglærðra starfsmanna í umönnunarstörfum og þetta þarf að vera styrkur þannig að hann sé hvetjandi. Það er ljóst að við þurfum að stíga aðeins stærri skref til að svara þessu kalli.
Einnig er talað um að bjóða þurfi styrki til þeirra sem vilja verða félagsliðar. Að sama skapi þarf að vera góður hvati til að sækja í það nám. Í nágrannalöndum okkar býðst ómenntuðu fólki, sem vinnur á hjúkrunarheimilum og í heimaþjónustu, styrkur hafi það hug á að skipta jafnvel um starfsvettvang. Við getum lært af því. Einnig þarf að sjá til þess að sjúkraliðar sem verða að taka að sér aukna ábyrgð geti farið í nám við hæfi til þess, og það er það nám sem ég var að ræða rétt áðan. Ég held að það sé farið af stað og mér sýnist á öllu að það gangi ágætlega. Ég vil þó segja að þó að við náum að standa okkur vel í námi hjúkrunarfræðinga breytir það því ekki að við munum alltaf þurfa að styðja við nám sjúkraliða og félagsliða. Það er leiðinlegt að segja það en það er bara þannig að hjúkrunarfræðingar hafa kannski ekki eins mikla möguleika inni á hjúkrunarheimilum vegna þess að þeir eru með þannig menntun, vegna þess að öll þessi menntun er jafn mikilvæg. Á hjúkrunarheimilum og sjúkrahúsum þarf það að vera á hreinu, ef við getum sagt sem svo, hvert starfssvið sjúkraliða ætti að vera og þess vegna þarf að sjá til þess að það séu vel skilgreind svið þar sem ætlunin er að notast við sjúkraliða.
Í þessum tillögum er fjallað um að í boði séu dvalarstyrkir og enn og aftur snýst það um krónur og aura. Fólk þarf stundum að fara fjarri heimilum sínum til að geta fengið vinnustaðanám utan heimabyggðar og þá er þetta hugsað eins og dreifbýlisstyrkur sem veittur er þeim sem stunda framhaldsskólanám utan ákveðins svæðis, þar sem framhaldsskólarnir eru. Hinn endinn á þessu er síðan álagið á þá sem starfa inni á hjúkrunarheimilum og á sjúkrahúsum og taka að sér nema. Fjármagn þarf að vera til staðar til að geta umbunað því starfsfólki sem tekur að sér að leiðbeina þeim nemum. Þarna getur verið álag sem fylgir líka töluverð ábyrgð þannig að þetta þarf að liggja mjög skýrt fyrir.
Talað er um að tryggja þurfi stöðu sjúkraliða. Það leiddi mig að því að skoða skýrslu sem unnin var hjá embætti landlæknis um lágmarksviðmið. Mér sýnist á öllu að við stöndum okkur ekki nægilega vel hvað varðar viðmið mönnunar á hjúkrunarheimilum. Við þyrftum að sjá til þess að vel verði staðið að því. Hér er skýrsla sem ég ætla að finna og ég ætla að leyfa mér að fara beint í niðurstöðukaflann. Þar er dálítið mikið af töflum og það er aldrei hægt að fara vel með þær í ræðustóli Alþingis. Það er betra að lesa í gegnum niðurstöðurnar. Hér er verið að ræða um hjúkrunarfræðinga eða faglærða starfsmenn. Ég ímynda mér að bæði sjúkraliðar og félagsliðar séu þar undir og jafnvel iðjuþjálfar og sjúkraþjálfarar og slíkir starfsmenn. Niðurstöðurnar leiða sem sagt í ljós að hlutfall þessara starfsmanna er lægra, þ.e. það eru færri umönnunarklukkustundir, og það eykur líkur á að vandamál komi fram sem tengjast RAI-gæðavísunum sem allt byggir jú á. Vitað er að skilgreina þarf lágmarkshlutfall stétta og fjölda umönnunarklukkustunda. Ég veit að það kann að hljóma dálítið hart að við förum að ræða þetta niður í klukkustundir og jafnvel mínútur, en einhvern veginn þarf að finna mælikvarða, þó að ég viti mætavel að enginn sem vinnur á þessum heimilum er að hugsa um klukkustundir eða mínútur. Þarfir íbúanna eru alltaf metnar ofar öðru. Ég hef alla vega ekki kynnst því öðruvísi. En það kemur í ljós að hlutfall hjúkrunarfræðinga og faglærðra er mjög misjafnt á milli hjúkrunarheimila. Það sama á við um fjölda umönnunarklukkustunda, sem er hugtakið sem er notað um þetta, á íbúa á sólarhring. Eins og ég sagði eykur það líkurnar á því að gæðavísarnir komi illa út og ýmsir fletir eru tilgreindir í því sem ég ætla ekki að fara yfir.
Það er einn stór þáttur sem ég held ég verði samt að fá að greina frá, en það eru auknar líkur á einkennum þunglyndis. Það hlýtur að haldast í hendur við það, og það eru upplýsingar sem margir hér í húsi hafa heyrt af, að við erum býsna dugleg við að gefa þunglyndislyf á hjúkrunarheimilum. Það sem ég vil segja með þessu er að það er ekki aðeins úti í samfélaginu, ef maður getur orðað það þannig, sem við erum dugleg að ávísa lyfjum í stað þess að veita raunverulega þjónustu sem kostar meira, líka með tilliti til fagfólks. Við getum rætt sálfræðinga og samninga við þá eða skort á þeim öllu heldur. Þetta ástand er þá líka inni á hjúkrunarheimilunum og það tengist því að sjálfsögðu að okkur vantar starfsfólk inn á hjúkrunarheimilin. Mér finnst þetta grafalvarleg staða en á sama tíma er ekki svo flókið að leysa hana. Það tekur vissulega tíma en allir virðast sammála um það, ef ég tek þetta saman, því að það kemur fram í niðurstöðum þessa starfshóps, sem var býsna vel settur saman, en þar er þetta sérstaklega sett fram. Þetta er það sem mér finnst mest sláandi í þessum niðurstöðum, þ.e. andleg líðan eldra fólks, meira að segja þess fólks sem er inni á hjúkrunarheimilum sem við myndum halda að væri í ákveðnu vari. Það er ekki nógu gott.
Við erum eftirbátar annarra þjóða þegar kemur að hlutfalli fagmenntaðra inni á stofnunum. Það segja tölur frá 2018 frá Hagfræðistofnun og það er þar sem við verðum að grípa inn í. Það mun kosta okkur fjármuni, en ég vona að við náum að hrinda þessu í framkvæmd og við hefðum mátt vera búin að því. Skýrslan kom út 2020. Við hefðum getað byrjað strax, grunnurinn er tilbúinn, og þetta er líka í samræmi við heilbrigðisstefnu til 2030.