151. löggjafarþing — 111. fundur,  10. júní 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[16:00]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Ástkær forseti. Hér er af svo mörgu að taka að ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja en ætli sé ekki best að byrja á byrjuninni. (Gripið fram í.) Já, eins og segir í Söngvaseið, það var alveg hárrétt hjá henni, líklega. Byrjum á stóru myndinni, heildarmyndinni eins og hún birtist í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar sem undirritað er af fimm fulltrúum meiri hlutans en ekki stjórnarandstöðunnar, enda sjá menn þetta ekki alveg sömu augum. Í áliti meiri hlutans segir um niðurstöðuna sem þá liggur fyrir að þessu máli afgreiddu, fjáraukanum afgreiddum, með leyfi forseta:

„Lagt hefur verið mat á afkomuhorfur ársins. Fjárlög voru samþykkt með 326,1 milljarða kr. halla.“ — Þetta er náttúrlega gríðarlega mikill halli en hann á sér vissar skýringar. — „Útgjaldaáhrif nýrra ráðstafana sem fram koma í þessu frumvarpi nema 21,3 milljörðum kr. þegar tekið er tillit til 2,4 milljarða kr. aukinna skatttekna af úttekt séreignarsparnaðar.“

Hér kemur áhugaverð staðhæfing. Hún er svo sem alveg rétt en það mætti setja hana í samhengi við svo miklu fleira því að í stað þess að talað sé um að útgjaldaáhrifin af þessu frumvarpi auki halla ríkissjóðs um 23,7 milljarða brúttó þá segja menn að nettóáhrifin séu aukning upp á 21,3 milljarða. Þetta er hins vegar almennt ekki gert þegar verið er að meta raunveruleg áhrif hinna ýmsu laga og aðgerða á tekjur eða útgjöld ríkissjóðs. Það er væntanlega fyrst og fremst rökstutt með því að það geti verið erfitt að áætla nákvæmlega hvað komi inn á móti, t.d. með tilslökunum, t.d. með því að draga úr skerðingum eldri borgara, eins og ég kem aðeins betur inn á í þessu samhengi á eftir. Það getur verið erfitt að reikna nákvæma tölu. Hagfræðin er náttúrulega ekki nákvæmnisvísindi og bara alls engin vísindi segja sumir, meira jafnvel eitthvað eins og lögfræði eða slíkar greinar. Engu að síður liggur fyrir að áhrifin eru til staðar.

Þá að dæminu um eldri borgara og skerðingar á kjörum þeirra. Þegar ríkið viðheldur stefnu sem dregur mjög úr getu og vilja fólks til að vinna áfram, segjum fólks sem hefur náð ákveðnum aldri en gæti gjarnan viljað vinna sér inn auknar tekjur, þá er verið að líta fram hjá því að ef þetta reynslumikla fólk ynni meira, skapaði meiri verðmæti, fengi greidd laun fyrir vikið, þá væri svo heilmikið að koma til ríkisins á móti í formi aukinna skatttekna. En í stað þess að líta á heildarmyndina er bara litið á það sem hrein útgjöld, hreinan kostnað fyrir ríkið, að draga úr skerðingunum.

Þessir neikvæðu hvatar birtast auðvitað víðar. Þeir draga t.d. úr sparnaði fólks, getu til að spara þegar þeir sem hafa sparað eru skertir óhóflega. Með öðrum orðum, herra forseti: Ríkið viðheldur og innleiðir í mörgum tilvikum aðgerðir sem fela í sér neikvæða hvata en kostnaðurinn við hvatana eða það sem ríkið gæti fengið á móti við það að aflétta þeim er ekki tekið með í reikninginn. Stundum gengur það svo langt að viðhorfið hjá stjórnvöldum virðist vera að allir peningar í landinu séu í raun eign ríkisins, það sé bara spurning hvað ríkið eigi að gefa fólki mikið af þeim launum sem það hefur unnið sér inn fyrir. Þannig er rætt um skattalækkanir eins og það sé nánast gjöf til vinnandi fólks að fá að halda eftir aðeins meiru af tekjum sínum.

Það má nefna ótal dæmi um þetta, ég ætla ekki að eyða miklum tíma í það, en að reikna skattalækkanir sem hreint tap gefur í raun ekki rétta niðurstöðu því að skattalækkanir mynda jákvæðan hvata til vinnu, aukinnar verðmætasköpunar, aukinnar neyslu, greiðslu virðisaukaskatts, alls konar skatta og gjalda sem ríkið er duglegt að leggja á á hverju stigi. Þess vegna geld ég varhuga við því að menn líti í sínum áætlunum, og þegar þeir taka ákvörðun um hvernig samfélaginu skuli stjórnað, algerlega fram hjá heildarmyndinni, en hér er það ekki gert. Hér er gert ráð fyrir að að 2,4 milljarðar komi á móti í formi aukinna skatttekna, væntanlega vegna þess að það var tiltölulega auðvelt að áætla þá tölu, 2,4 milljarða, og auðvitað vegna þess að það lækkar heildarupphæðina á kostnaðinum við þetta frumvarp. En svo segir einnig:

„Á móti vegur 13,2 milljarða kr. betri afkoma vegna endurmats á kostnaðaráætlun aðgerða sem er nú þegar áætlað fyrir í fjárlögum. Auk endurmats annarra liða sem miðar við rúmlega 6 milljarða kr. betri afkomu er nú gert ráð fyrir halla sem nemur 328 milljörðum kr. eða 10,5% af vergri landsframleiðslu (VLF).“

Ástæðan fyrir þessu endurmati á kostnaðinum við fyrri aðgerðir sem gert var ráð fyrir í fjárlögum er ekki hvað síst sú að úrræðin hafa ekki nýst eins vel og ráð var fyrir gert. Það átti nú við um sum af stærstu úrræðunum sem voru kynnt, einkum í upphafi, og prísuð fyrir það hvað þau kostuðu mikið eða hvað væru miklar upphæðir þar undir í þessum aðgerðum, að þau voru ekki öll mikið nýtt. Nú má t.d. nefna varðandi hlutdeildarlánin, sem ríkisstjórnin kynnti sem framfaraskref, að það virðist ganga erfiðlega fyrir fólk að fá þau. Maður heyrir sögur, ekki hvað síst úr kjördæminu, að ungt fólk sem er að sækja um þessi lán og reyna að koma sér upp húsnæði, fái ekki svör, jafnvel að því marki að það missir svo húsnæðið af því að það er selt einhverjum öðrum. Ég vona að verið sé að reyna að bæta þar úr. Auðvitað, svo maður sé sanngjarn, er ekki hægt að sjá fyrir alltaf hvaða úrræði nýtast best og við þessar aðstæður þurfti að grípa til ýmiss konar úrræða. Engu að síður voru nokkur tilvik þar sem menn gátu að mínu mati sagt sér að það væri hægt að fara betur með fjármagnið, hægt að láta það skila meiri árangri með annars konar aðgerðum, en það er utan við efni þessa máls að einhverju leyti.

Það mál sem hér er lagt fram felur auðvitað í sér talsverða viðbót við þann mikla halla sem þegar var til staðar. Allir níu útgjaldaliðirnir sem hér eru kynntir eru atriði sem máttu vera fyrirsjáanleg við síðustu fjárlagagerð og auðvitað nokkuð skrýtið að menn skuli ekki einfaldlega hafa klárað þetta þá og sett inn í fjárlögin á þeim tíma. Kannski var einhver hvati til að draga aðeins úr skellinum við fyrstu kynningu fjárlaganna og bæta þá frekar við núna. Kannski sáu menn fyrir sér að það væri ágætt að bæta við útgjöldum hér og þar þegar nær drægi kosningum, ég skal ekki segja, en flestir þessara liða áttu að vera fyrirsjáanlegir og ríkisstjórnin hefði átt að láta það fylgja með í fjárlögunum sjálfum. Hallinn verður sem sagt núna, að þessu viðbættu og þegar allt er tekið með í reikninginn, um 328 milljarðar kr. eða 10,5% af vergri landsframleiðslu. Landsframleiðsla er náttúrlega miklu meira, miklu hærri upphæð en bara útgjöld ríkisins, svoleiðis að þetta eru einhverjir tugir prósenta af útgjöldum ríkisins, hallinn.

„Afkomuspáin“ — þessi spá um 10,5% halla miðað við landsframleiðslu — „er innan marka gildandi fjármálastefnu þar sem áætlað var að halli ríkissjóðs gæti numið 9% af VLF …“ svoleiðis að jafnvel þessi uppfærða áætlun stenst ekki og hallinn reynist meiri. En hvernig stóð á því að ríkið gat núna rekið sig með nokkur hundruð milljarða króna halla, til að bregðast við efnahagslegum áhrifum kórónuveirufaraldursins ekki hvað síst? Það er einkum vegna þeirra aðgerða sem ráðist var í fyrir nokkrum árum í tíð ríkisstjórnarinnar 2013–2016 þar sem var farið í mjög róttækar pólitískar aðgerðir. Þær aðgerðir urðu ekki til af sjálfu sér. Það voru aðgerðir byggðar á róttækri rökhyggju, á því að gera það sem þurfti við þáverandi aðstæður, gera það sem væri framkvæmanlegt og tryggja hagsmuni samfélagsins. Það tókst að því marki að ekkert ríki, a.m.k. ekki í seinni tíma sögu, hefur náð eins hröðum og eins miklum efnahagslegum viðsnúningi og Ísland vegna þessara aðgerða, sem gerir stjórnvöldum nú kleift að þreifa fyrir sér með aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum kórónuveirunnar, bæta við nýjum útgjöldum í þessu frumvarpi og auðvitað boða eitt og annað til viðbótar núna í aðdraganda kosninga.

Oft ganga stjórnvöld heldur langt við að reyna að merkja sér það sem þau skilgreina jafnvel sem gjafir. Ferðaávísunin sem svo var kölluð nýttist reyndar einkum bensínstöðvum og skyndibitastöðum en var ágætisaðgerð engu að síður, það var mikilvægt að aðstoða ferðaþjónustuna. Nafninu var allt í einu breytt í ferðagjöf stjórnvalda, sem sýnir kannski svolítið viðhorf a.m.k. ríkjandi stjórnvalda til þess fjármagns sem er í ríkissjóði, að það sé einhvern veginn þeirra að gefa skattgreiðendum. Skattgreiðendur voru auðvitað búnir að borga þetta áður sjálfir og fengu þarna örlítið til baka en þá var það gjöf. Þetta hefur því miður verið ríkjandi viðhorf en það er samt að mínu mati áhyggjuefni að ekki sé litið á þá peninga sem fólk vinnur sér inn sem eign þess fyrst og fremst heldur sé hinn eðlilegi áfangastaður alls fjármagns í ríkiskassanum og svo sé bara spurning hvað menn fái að halda miklu eftir eða hvað þeir fái miklar gjafir frá ríkinu.

Látum þetta nægja af heildarmyndinni, um afkomuna eftir að þetta frumvarp verður afgreitt hér. Þá ætla ég að snúa mér að ákveðnum liðum frumvarpsins og byrja á hjúkrunarheimilunum því þau tengjast öðru stóru viðfangsefni sem þetta samfélag, þessi ríkisstjórn, verð ég nú að segja, hefur verið í svolitlum vandræðum með á undanförnum árum. Hjúkrunarheimilin hafa verið mjög mörg um allt land í verulegum fjárhagsvanda enda eru lagðar á þau miklar skyldur. Sett hefur verið í lög að fólk eigi rétt á ákveðinni þjónustu og heimilin þurfa að veita þá þjónustu. En ríkið hefur ekki verið reiðubúið til að fjármagna þetta að því marki að hægt sé að veita þjónustuna til fulls. Því hafa hjúkrunarheimilin annaðhvort verið rekin með halla eða þurft að reiða sig á stuðning, til að mynda frá sveitarfélögum.

Það er ekki annað að sjá af því hvernig þessi mál hafa þróast undanfarin ár en að þetta tengist a.m.k. að einhverju leyti því sem stundum virðist vera fjandskapur stjórnvalda, þessarar ríkisstjórnar, hæstv. heilbrigðisráðherra, í garð sjálfstæðra stofnana, sjálfstæðra félaga og sjálfstætt starfandi fólks á heilbrigðissviði, því að vandinn er ekki nýtilkominn. Hér er einmitt nefnt í meirihlutaálitinu að árið 2019, fyrir tveimur árum, hafi samanlagður halli þessara hjúkrunarheimila þegar verið tæpur milljarður króna á því eina ári. Farið var í að skoða þetta og velta þessu öllu fyrir sér fram og til baka og allt lá meira og minna fyrir eða hefði átt að gera það við gerð síðustu fjárlaga en þá var samt ekki gripið til þeirra ráðstafana sem þó blasti við að væru nauðsynlegar heldur starfsfólki og rekstraraðilum þessara hjúkrunarheimila haldið í viðvarandi óvissu. Svo einbeitt voru stjórnvöld í því að bæta ekki við því sem þurfti við fjárlagavinnuna að hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans felldu allir sem einn tillögur Miðflokksins um rökstuddar og fjármagnaðar viðbætur til hjúkrunarheimilanna til að aðstoða þau við að taka á þessum vanda. Það sama gerðist reyndar árið áður því eins og kemur fram hér var vandinn ljós þá líka. En það sama var uppi á teningnum, hver einasti stjórnarliði felldi tillögur Miðflokksins um að bæta þarna í en þeir koma svo þess í stað núna með þetta hér í fjáraukalagafrumvarpi.

Ég ætla þá næst að færa mig yfir í umfjöllun um Landspítalann. Menn þekkja það nú úr stjórnmálaumræðu og fréttum, eiginlega eins langt aftur og maður man eftir sér, að fjárhagsvandi á Landspítalanum er ekki alveg nýr hlutur. Það hefur hins vegar reynst rétt sem fyrrverandi landlæknir, og reyndar núverandi aðstoðarmaður hæstv. heilbrigðisráðherra, benti á á sínum tíma, fyrir allmörgum árum, að menn geti bætt endalaust fjármagni í heilbrigðiskerfið án þess að það komi að gagni, það geti jafnvel orðið til tjóns ef menn lagi ekki kerfið sjálft. Nú hafa náttúrlega ár eftir ár fjárframlög til Landspítalans verið aukin. En það hefur algerlega skort á að gerðar yrðu úrbætur í kerfinu sjálfu og þá er ég tala um heilbrigðiskerfið allt. Þess í stað hafa stjórnvöld unnið að því jafnt og þétt að ýta öllu kerfinu öllu inn á Landspítalann, ég segi öllu, það eru auðvitað ýkjur, en að ýta sífellt stærri hluta kerfisins inn á Landspítalann og að sá spítali þurfi að vera við Hringbraut. Bara ein ríkisstofnun og ríkið skal vera við Hringbraut, segir kerfið. Þessi ríkisstjórn hefur svo sannarlega fylgt eftir því markmiði að þjappa öllu sem mest saman þannig að jafnvel frjáls félagasamtök sem hafa gert samfélaginu gríðarlegt gagn árum og áratugum saman, félög eins og Krabbameinsfélagið, SÁÁ, ótal slík félög, eru bara ekki velkomin í þetta lengur. Þetta skal allt sett undir ríkið með þeim afleiðingum sem við sjáum svo birtast í hverju málinu eftir annað, skimanamálinu til að mynda nýverið.

Herra forseti. Ég er ekki búinn með umfjöllun mína um heilbrigðiskerfið og það sem lesa má út úr þessu frumvarpi hvað varðar þróun þess. (Forseti hringir.) Ég gæti þurft að halda hér aðra ræðu, með leyfi hæstv. forseta.