fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Ég ætla að halda hér áfram þar sem frá var horfið í ræðu minni um frumvarp til fjáraukalaga fyrir þetta ár, síðasta frumvarp þessarar ríkisstjórnar sem lýtur að ríkisfjármálum. Ég ætla aðeins að beina máli mínu að Landspítalanum. Við höfum rætt svolítið í þessari umræðu, og ég benti á það, að það ríki ákveðið kjarkleysi af hálfu ríkisstjórnarinnar við að leysa rekstrarvanda hjúkrunarheimilanna. Ríkisstjórnin talaði fallega um þessi mál í stjórnarsáttmála sínum, að hún myndi bæta rekstrarafkomu hjúkrunarheimilanna og bæta þann málaflokk á öllum sviðum, en lítið hefur gerst í þeim efnum. Vissulega eru settir peningar í að byggja ný hjúkrunarheimili, sem er góðra gjalda vert, en það þarf líka að reka þessi heimili. Ríkisstjórnin hefur hins vegar ekki áttað sig á því. Þess vegna blasir við þessi mikli vandi. Þetta er uppsafnaður vandi sem er afar brýnt að taka á. Á síðustu metrum þessa kjörtímabils kemur ríkisstjórnin með fjárveitingu upp á 1 milljarð kr. til að bæta stöðuna en það er tímabundin ráðstöfun og háð ákveðnum skilyrðum. Hún mun ekki leysa vandann til frambúðar. Það þarf að leysa vandann til frambúðar og það er greinilegt að ríkisstjórnin hefur ekki kjark til þess.
Ég ætla að koma aðeins inn á Landspítalann. Landspítalinn er okkar stærsta og mikilvægasta heilbrigðisstofnun og hann hefur á að skipa framúrskarandi starfsfólki sem vinnur óeigingjarnt starf á hverjum degi og oftast við erfiðar aðstæður. Miklar umræður hafa skapast um rekstrarvanda spítalans og sá vandi á sér margþættar rætur. Við höfum rætt þetta oft innan fjárlaganefndar á kjörtímabilinu og við höfum margsinnis fengið stjórnendur spítalans og heilbrigðisráðuneytið á okkar fund til þess að ræða með hvaða hætti hægt sé að ná niður hallanum á spítalanum og fara í hagræðingaraðgerðir, sem á endanum bitna náttúrlega á þjónustunni. Kjarni málsins er sá að spítalinn og sú þjónusta sem hann veitir vex hraðar en fjárlög gera ráð fyrir og það þrátt fyrir reiknaðan raunvöxt upp á 1,8% ár hvert, þ.e. sjálfvirka hækkun á fjárlögum til Landspítalans á hverju ári um 1,8% vegna raunvaxtar í kostnaði og rekstri spítalans. Spítalinn hefur tekið að sér ný verkefni þar sem fjárveitingar hafa ekki fylgt með og er rétt að halda því til haga að af hálfu yfirstjórnar heilbrigðismála hefur t.d. ekki verið leyst úr svokölluðum fráflæðisvanda. Hann er enn til staðar og hann er mjög kostnaðarsamur. Þar eru einstaklingar sem hafa verið að leita sér lækninga, geta ekki farið heim og þurfa þá á öðrum úrræðum að halda. En það er engin ástæða að halda þeim í dýrustu úrræðunum sem eru náttúrlega á Landspítalanum. Þar liggur fólk, einstaklingar, sem með réttu lagi ættu að vera á hjúkrunarheimilum. Þetta kostar að sjálfsögðu heilmikla fjármuni og þessu hefur ekki verið mætt sem skyldi.
Síðan voru árið 2015 gerðir flóknir kjarasamningar við lækna sem hefur verið erfitt að kostnaðarmeta. Þetta er ágætur samningur fyrir heilbrigðiskerfið í sjálfu sér, held ég, en kostnaðarþættirnir voru vanmetnir. Því miður virðist það vera svolítil lenska hjá okkur að menn vanmeta kostnaðinn sem ríkisvaldið er að skuldbinda sig til þegar kemur að því að reyna að leysa kjarasamninga. Nærtækast er að nefna styttingu vinnuvikunnar — sem hefur verið nefnd hér og er hið besta mál, sérstaklega fyrir þá sem vinna í vaktavinnu því að vaktavinna er ákaflega slítandi og getur verið erfið — en henni fylgdu ekki neinar fjárveitingar. Þetta kostar. Það þarf að fjölga starfsfólki á mörgum stöðum; í lögreglunni og hjúkrunarfræðingum, þessu vaktavinnufólki. Það hafa hins vegar ekki fylgt neinar fjárveitingar og í raun og veru hefur ekkert verið reiknað út hvað þetta kemur til með að kosta. Að sama skapi má segja um samninginn við lækna, sem var gerður 2015, að spítalinn hafi aldrei fengið nægilegt fjármagn til að standa straum af heildarkostnaði við samninginn. Það er að sjálfsögðu brýnt og það er hagur okkar allra að búa heilbrigðisstarfsfólki viðunandi starfsskilyrði og tryggja þannig að mönnun sé á hverjum tíma fullnægjandi. Mönnunarvandi spítalans er einn af hans stærstu áskorunum. Heilbrigðisyfirvöld hafa í raun og veru ekki lagt fram neinar áætlanir um það með hvaða hætti eigi að bregðast við honum. Það verður bara að segjast eins og er. Verkefni sem gaf mjög góða raun og var ein af aðgerðunum til þess að laða hjúkrunarfræðinga til starfa var svokallað Hekluverkefni þar sem hjúkrunarfræðingar fengu ákveðnar álagsgreiðslur fyrir störf sín. Það var hins vegar lagt niður sem hefur gert það að verkum að þessi mikilvæga tilraun náði í raun og veru aldrei nógu langt. Það er mikill skortur á hjúkrunarfræðingum á Landspítalanum og margar deildir eru undirmannaðar, svo þekkjum við að hjúkrunarfræðingar voru lengi í kjaraviðræðum við ríkisvaldið, marga mánuði, og ekkert gekk í þeim efnum. Það var alveg ljóst að samningsvilji af hálfu ríkisvaldsins var takmarkaður.
Herra forseti. Ríkissjóður, ríkisstjórnin og stjórnvöld verða að eiga raunhæft samtal við Landspítalann um lausnir. Það sama er í þessum fjárauka hér, það vantar þetta raunhæfa samtal við stjórnendur hjúkrunarheimilanna. Þau hafa kvartað yfir samráðsleysi og öðru slíku þegar kemur að því að leysa þann vanda. Hægt er að yfirfæra þetta nákvæmlega yfir á rekstrarvanda Landspítalans. Það vantar alltaf þetta raunhæfa samtal. Gleymum því ekki að Landspítalinn er fyrst og fremst bráðasjúkrahús og eðli þjónustunnar sem spítalinn veitir er að hún er ófyrirséð. Menn vita ekki hversu mikla þjónustu þeir þurfa að veita og þar af leiðandi vita þeir ekki nákvæmlega hvað hún kemur til með að kosta. Þannig er hægt að segja að það henti illa fyrir spítalann að vera á föstum fjárlögum. Þetta er eitthvað sem þarf að fara vandlega yfir við fjárlagagerð og reyna að eiga samtal við stjórnendur um hvernig best sé hægt að standa að þessum málum þannig að við þurfum ekki alltaf á hverju ári, fjárlaganefnd, að ræða það við stjórnendur spítalans hvernig hann eigi að ná niður hallanum á þessu ári og því næsta o.s.frv. Það er alltaf sama rullan þegar fundað er með stjórnendum spítalans, viðvarandi halli sem er verið að reyna að ná niður og glíma við.
Svo þekkjum við náttúrlega að bráðamóttakan getur ekkert lokað þegar fjárveitingin er búin. Hér þarf því meiri sveigjanleika. Álag á heilbrigðiskerfið mun aukast jafnt og þétt á næstu árum og einnig með hækkandi lífaldri þjóðarinnar. Við þurfum að hafa skilvirka þjónustu þegar kemur að heilbrigðiskerfinu og fara yfir þessi mál með stjórnendum þeirra stofnana sem við treystum til þess og hafa staðið sig vel. (Forseti hringir.) En ábyrgðin er fyrst og fremst ríkisins og stjórnvalda í þessum efnum.