fjáraukalög 2021.
Hæstv. forseti. Okkur hefur orðið nokkuð tíðrætt þingmönnum hér í dag og áður um þá óbeit sem hæstv. heilbrigðisráðherra virðist hafa á sjálfstætt starfandi aðilum í heilbrigðisþjónustu, fyrirtækjum sjálfstætt starfandi og jafnvel félagasamtökum. En það fer ekki mikið fyrir því að við höfum rætt um það hverjir eru fórnarlömb í þessu máli. Hverjir eru þeir sem verða fyrir, afsakið, skaða af þessari stefnu. Það segir í frétt sem ég rakst á í morgun, herra forseti, frá sjö ára stúlku á Egilsstöðum sem fær ekki talþjálfun. Þetta er stúlka sem glímir við málþroskaröskun. Hún fær ekki talþjálfun lengur. Hún var undir verndarvæng talmeinafræðings sem var ekki útlærður og var þess vegna undir handleiðslu hjá öðrum. Nú er náminu lokið og þá semja Sjúkratryggingar ekki við þennan nýútskrifaða talmeinafræðing fyrr en eftir tvö ár. Og nú velti ég fyrir mér tvennu, herra forseti: Hvað á þessi nýútskrifaði talmeinafræðingar að gera í tvö ár ef hann hefur ekki samning við Sjúkratryggingar? Í öðru lagi: Hvernig má það vera að sjö ára barn sem þarf á þessari þjónustu að halda fái hana ekki út af einhverjum reglum sem eru settar um að það megi ekki semja við menn fyrr en eftir tveggja ára starf? Ég velti bara fyrir mér, herra forseti: Hver er það sem tekur ákvörðun um þessa reglu? Ég segi aftur: Hvernig á talmeinafræðingurinn nýútskrifaði að fá starfsþjálfun í tvö ár ef hann hefur ekki samning?
Þetta leiðir hugann að því, herra forseti, að ég hitti um daginn sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara en eins og við vitum öll þá hefur verið kappkostað að sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar komi sér saman í einhverjar stærri einingar eða gerist starfsmenn heilsugæslu eða eitthvað slíkt. Sem sagt: Það verður að ríkisvæða. Þessi sjúkraþjálfari sagði að þegar hún hóf störf fyrir nokkrum árum sem sjálfstætt starfandi hafi verið á biðlista 20 manns hjá henni. Þeir eru 160 núna, herra forseti.
Þetta eru fórnarlömb þessarar helstefnu heilbrigðisráðherra sem beinist gegn einkaaðilum en bitnar á saklausu fólki sem getur ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Og það vill þannig til, herra forseti, að ég tók saman um daginn mismuninn á biðlistum, þ.e. fjölda á biðlistum eftir algengum aðgerðum frá því í byrjun október 2017, þ.e. rétt áður en núverandi heilbrigðisráðherra tók við embætti, og hvernig þetta var í janúar á þessu ári. Þetta eru tölur frá landlækni, herra forseti, svo ég grípi niður af handahófi: Í október 2017 biðu rúmlega 700 eftir augasteinsaðgerð en eru rúmlega 1.700 nú. Það biðu 12 árið 2017 eftir hjartalokuaðgerð, 22 nú. Það biðu 72 eftir brennsluaðgerðum á hjarta þá en 289 núna. Það biðu 56 árið 2017 eftir gallsteinaaðgerð eða steinbrjótsmeðferð, 206 nú. Það biðu 90 árið 2017 eftir brottnámi legs en 150 nú. Það biðu 241 eftir gerviliðaaðgerð á mjöðm 2017, það eru 503 núna. Það biðu 491 í október 2017 eftir gerviliðaaðgerð á hné en 974 í janúar 2021. Nú verður maður að spyrja: Hversu lengi ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að láta það viðgangast að þessi stefna heilbrigðisráðherra bitni á saklausu og sjúku fólki? Við verðum að fá svar við því, herra forseti.