fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Við ræðum hér frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2021. Það er eitt atriði sem ég ætla að gera að umræðuefni í þessari stuttu ræðu sem ég hef hér tækifæri til að flytja. Það er sem sagt áform um að veita aukalega 120 millj. kr. vegna tímabundins stuðnings ríkisins við Strætó bs. vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins. Þar segir að frá árinu 2012 hafi ríkissjóður styrkt Strætó bs. um u.þ.b. 900 millj. kr. á ári á grundvelli samnings um tíu ára tilraunaverkefni til eflingar almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Það er náttúrlega kunnara en frá þurfi að segja að þetta tilraunaverkefni, sem staðið hefur yfir í tíu ár, hefur ekki skilað marktækum árangri miðað við nýtingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.
Það er auðvitað verðugt viðfangsefni að greiða fyrir almenningssamgöngum. Sú stefna hefur verið uppi að ráðast í gerð svokallaðrar borgarlínu sem haldin er alvarlegum ágöllum. Það eru mjög óljósar áætlanir uppi um kostnað við þá framkvæmd. Engin rekstraráætlun liggur fyrir. Það virðist vera að ekki sé talin þörf á því að gera rekstraráætlun vegna þess að það eigi bara að fjármagna þetta með nýjum sköttum á umferðina, hvort sem þeir eiga að heita umferðargjöld, vegagjald, tafagjald, flýtigjald. Það hefur heyrst í umræðunni.
Það stendur þannig á, herra forseti, að orðið hefur til áhugamannahópur sem kallar sig áhugafólk um samgöngur fyrir alla, ÁS. Þessi hópur stendur saman af sérfræðingum, verkfræðingum, umferðarsérfræðingum, hagfræðingum og öðrum slíkum auk kunnáttumönnum. Þessir aðilar hafa lagt fram áætlanir sem gera ráð fyrir því að ráðast í framkvæmdir á þessu sviði sem myndu ná sams konar árangri og stefnt er að með borgarlínu, en fyrir 80 milljörðum kr. minni kostnað en þeir 100 milljarðar sem lagðir eru til grundvallar sem kostnaður við borgarlínuna. Þann sparnað segja talsmenn þessarar hugmyndar að megi nota í mun hagkvæmari framkvæmdir við þjóðvegi á höfuðborgarsvæðinu.
Herra forseti. Þegar sú staða er uppi að áætlanir eru um að ríkissjóður leggi mjög verulegt fé til gerðar þessarar svokölluðu borgarlínu, þ.e. 50 milljarða, eins og gert er ráð fyrir í samkomulagi um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu, 50 milljarða úr ríkissjóði, auk þess söluandvirði Keldnalands, og síðan er talað um að a.m.k. hluti af söluandvirði Íslandsbanka renni inn í þessa hít, þá er náttúrlega ekki varlegt eða gætilegt eða ábyrgt að líta fram hjá mótuðum tillögum sem koma fram af hálfu sérfræðinga og kunnáttumanna sem gera ráð fyrir því að hægt sé að ná sams konar árangri fyrir brot af þeirri fjárhæð sem þarna er áætluð, sem eru 100 milljarðar, þ.e. fyrir 20 milljarða, og spara þannig 80 milljarða kr. Síðan blasir náttúrlega við arðsamasta verkefnið sem sjáanlegt er í samgöngumálum, sem er gerð Sundabrautar sem hefur margvíslega kosti. Hún tengir landsbyggðina og höfuðborgarsvæðið, ekki bara vestur og norður heldur líka suður. Það myndi létta mjög hinu þunga álagi sem er í Ártúnsbrekkunni, eins og menn þekkja. Auðvitað ber að ráðast í þá framkvæmd sem allra fyrst og leggja þessi borgarlínuáform á hilluna þar sem þau eiga heima.