151. löggjafarþing — 111. fundur,  10. júní 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[20:22]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Eitt mikilvægt atriði átti ég eftir að nefna í þessari umræðu. Hv. þm. Ólafur Ísleifsson kom reyndar aðeins inn á það í ræðu sinni hér áðan, en það lýtur að þeirri þróun sem mér finnst eiginlega vera að ágerast, að stjórnvöld leyfi sér að líta fram hjá kostnaði sem þó er óhjákvæmilegur og noti það sem afsökun að ekki sé hægt að reikna kostnaðinn nákvæmlega. Eða, sem gerist kannski oftar, kjósa að líta algjörlega fram hjá kostnaðinum. Borgarlínuverkefnið er einmitt dæmi um það. En það og nálgun stjórnvalda hvað varðar almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu sýnir okkur líka annað vandamál í fjárreiðum ríkisins eða hvernig með þær er farið, og það er skortur á því að það hafi eitthvað um útgjöldin að segja hvort þau skili árangri eða ekki. Hér vísa ég til samkomulags sem gert var um að styðja við almenningssamgöngur á Evrópusvæðinu, Strætó, í áratug í tíu ár, um hátt í milljarð króna af ríkisfé á ári. En í staðinn, þetta er kannski undarlegast af öllu við það, þá átti ekki að fara í neinar stórar samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu í þessi tíu ár. Röksemdafærslan var sú að það fjármagn sem sparaðist við að fara ekki í oft og tíðum nauðsynlegar samgöngubætur gæti runnið í Strætó til þess að auka nýtingu strætisvagna. Menn sáu kannski fyrir sér að áfram yrði þrengt að umferðinni með því að gera ekkert í því að rýmka fyrir henni og fleiri myndu þá leita í hinn ríkisstyrkta strætó. Þetta skilaði engum árangri, herra forseti, engum árangri. Það var talað um að nýting Strætó gæti farið úr um 4% í 12%, en þegar verkefnið byrjaði var nýtingin 4% og þegar tíu árin voru liðin var nýtingin enn 4%. Þrátt fyrir þetta ákvað ríkið, og að því er virðist líka núverandi ríkisstjórn — eða ekki að því er virðist því að hæstv. samgönguráðherrann er búinn að segja það — að framlengja þessa styrki ríkissjóðs sem engu skiluðu og svo kemur þetta sérstaka viðbótarframlag sem getið er um í þessu frumvarpi.

Þetta tengist auðvitað áformunum um borgarlínuna þar sem ríkið ákvað að setja 50 milljarða í þetta kosningaloforð Samfylkingarinnar í Reykjavík svona til að byrja með án þess að fyrir lægi mat á heildarkostnaðinum við verkefnið og án þess að fyrir lægi mat á því hvað myndi kosta að reka það. Það var aðeins vegna baráttu okkar þingmanna Miðflokksins að meiri hlutinn fékkst þó til að setja inn í nefndarálit athugasemd um að það væri ekki sjálfgefið að ríkið myndi borga endalaust áfram í framkvæmdina og svo reksturinn á þessu apparati. Svipaða hluti sjáum við í umræðunni um hælisleitendamálin þar sem er gert ráð fyrir grundvallarbreytingu þar sem margfalt fleira fólk á að fá sömu þjónustu og áður var tryggð afmörkuðum hópi, þ.e. kvótaflóttamönnum sem við höfum lagt mikla áherslu á að taka vel á móti. En með því að margfalda þann fjölda sem ætti rétt á þeirri sömu þjónustu má öllum vera ljóst að það hefur einhver kostnaðaráhrif í för með sér til viðbótar við áhrifin af meiri ásókn auðvitað. En fram hjá þessu var bara litið.

Þetta eru bara tvö eða þrjú dæmi um það sem gerist of oft, að litið er fram hjá kostnaði sem er augljóst að falli til og jafnvel mjög verulegum kostnaði og eins og í þessum tveimur málum sem ég nefndi hér síðast er því bara sleppt að nefna en hann. En hann kemur svo.