fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Ég ætla að halda hér aðeins áfram við að fara yfir minnisblað frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem barst okkur nefndarmönnum í fjárlaganefnd í tengslum við vinnuna við þetta fjáraukalagafrumvarp. Í fyrsta kaflanum þar er rakið svona almennt hlutverk fjáraukalaga og þess getið að þær ráðstafanir sem þar er að finna eigi að vera tímabundnar, ófyrirséðar og óhjákvæmilegar, til að bregðast við útgjöldum sem eru óhjákvæmileg og innan fjárlagaársins. Það er svolítill misbrestur á því hvernig ríkisstjórnin hefur haldið utan um þetta.
Þetta eru ekki fyrstu fjáraukalögin sem eru lögð fram af hálfu ríkisstjórnarinnar en sumt af því hefur orkað mjög tvímælis að ætti í raun og veru heima í fjáraukalögum. Hér er reyndar verið að bregðast við ófyrirséðum hlutum eins og t.d. atvinnuleysinu, það er nú einu sinni þannig, og það á svo sannarlega heima í fjáraukalögum. Það eru gríðarlegir fjármunir sem fara í atvinnuleysistryggingakerfið og hvert prósentustig í atvinnuleysi er okkur dýrt, hvert prósentustig kostar rúma 6 milljarða, minnir mig, á ársgrundvelli. Þið sjáið að hér er um verulega háar upphæðir að ræða og til mikils að vinna að búa til störf og nýta og gefa einkaframtakinu tækifæri til að fjölga starfsmönnum. Þar gegnir ríkisvaldið náttúrlega mikilvægu hlutverki, þ.e. að búa fyrirtækjunum það starfsumhverfi að þau geti blómstrað og dafnað og síðan fjölgað starfsmönnum og greitt hærri laun. Það er hagur alls samfélagsins að starfsumhverfi fyrirtækja á Íslandi sé sem best. Þar erum við líka að horfa til samkeppninnar erlendis frá, þ.e. að við séum samkeppnishæf að fá erlenda fjárfestingu inn í landið, fá erlend fyrirtæki til að hefja hér starfsemi. Það skiptir verulegu máli. Erlend fjárfesting er atvinnuskapandi. og þá þarf umhverfið náttúrlega að vera aðlaðandi. Fjölmörg lönd eru að keppa um að fá gagnaver og þessi stóru fyrirtæki sem eru á alþjóðavísu, t.d. hvað varðar hugverkaiðnaðinn og annað slíkt.
Írland er dæmi um land sem hefur staðið sig ótrúlega vel í því að laða til sín erlenda fjárfestingu, sérstaklega í hugverkaiðnaðinum sem ég held að sé u.þ.b. 26% af landsframleiðslu þeirra. Við höfum heilmikil tækifæri til að láta að okkur kveða í þeim efnum og vera aðlaðandi fyrir erlenda fjárfestingu. Við höfum hér eftirsóknarverða græna orku, sem fer vaxandi hvað varðar eftirspurn ár frá ári, og endurnýjanlega orku.
Þetta skiptir allt verulegu máli í dag þegar fyrirtæki eru að velja sér land til að vera með starfsemi. Og stöðugleiki stjórnmálalega séð og í efnahagsmálum, það skiptir allt verulegu máli. Það er því ekki síst þetta hlutverk sem stjórnvöld verða að taka alvarlega. Hér er verið að búa til fullt af störfum en þau eru ekki sjálfbær að því leytinu til að þetta eru tímabundin störf. Þau eru ekki sjálfbær að því leytinu til að þau eru náttúrlega fjármögnuð af ríkissjóði. Ríkissjóður er að leggja peninga í að búa til störf tímabundið til að vinna bug á atvinnuleysinu en það vantar síðan í framhaldinu: Hvað svo? Hvað svo þegar þessir peningar eru búnir og við sjáum þá fram á að annaðhvort þarf að finna önnur úrræði eða að virkja fyrirtækin í landinu? Þetta höfum við í Miðflokknum lagt áherslu á. Við höfum flutt breytingartillögur um varanlega lækkun tryggingagjalds um 0,25% og við höfum reynt að koma með tillögur sem stuðla að bættu rekstrarumhverfi fyrirtækjanna. En því miður hefur ríkisstjórnin bara fellt þessar tillögur og ekki sýnt því (Forseti hringir.) þann skilning sem á að gera.