151. löggjafarþing — 112. fundur, 11. júní 2021.
samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
354. mál
Hæstv. forseti. Í þessu máli legg ég fram breytingartillögu sem áréttar aðild og þátttöku beggja foreldra í málum barna sinna. Tillagan kostar ekkert en hún áréttar, eins og ég kom inn á rétt áðan, að hugtakið foreldri nái einnig yfir það foreldri sem hefur reglulega umgengni. Eins og við vitum skiptir þátttaka foreldra í þroska barna miklu máli og nauðsynlegt er að árétta að börn sem búa á tveimur heimilum verði ekki undanskilin.