151. löggjafarþing — 112. fundur,  11. júní 2021.

samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .

354. mál
[11:09]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við Píratar styðjum að sjálfsögðu þessi mikilvægu mál sem snúa að heildarbreytingu á barnaverndarlögum og samþættingu þjónustu. Fyrirvarinn var í sambandi við persónuvernd og að öryggi viðkvæmra persónuupplýsinga barna væri tryggt. Við komum með breytingartillögur sem voru felldar í 2. umr. Mér þykir það miður. Það er óþarfa glannaskapur að geta ekki tryggt þetta öryggi með því að fresta gildistöku laganna um örfáa mánuði til að passa að tæknilausnir séu til staðar til að tryggja það. Þetta er samt mikil réttarbót fyrir börn og snýr að því að grípa börn sem lenda í erfiðum aðstæðum snemma og er mikilvæg snemmtæk íhlutun sem snýr m.a. að vernd barna gegn ofbeldi. Auðvitað styðjum við þessi mál en ábyrgð ríkisstjórnarinnar er mikil að tryggja að áhyggjur varðandi skort á öryggi persónuupplýsinga verði ekki að veruleika.