151. löggjafarþing — 112. fundur, 11. júní 2021.
samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
354. mál
Herra forseti. Það er sérstakt fagnaðarefni að ná þeim tímamótum að klára að greiða atkvæði um þessi þrjú stóru mál, gríðarlega mikilvægu mál, og undirstrika þar með þann vilja samfélagsins alls að taka nýja stefnu og betri í málefnum barna á Íslandi. Það er óskandi og ég hlakka til að sjá það í framhaldinu að samfélagið taki innleiðingu þessara nýju laga með jafn farsælum hætti og aðdragandi frumvarpanna hefur verið. Þá munum við búa til betri framtíð fyrir börn á Íslandi.