samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Virðulegur forseti. Þessi fjögur barnamál eru frábær mál en því miður hefðum við að mörgu leyti þurft að vinna betur, vinna þau á klöpp en því miður eru þau að hluta til unnin í kviksyndi og kviksyndið eru biðlistarnir. Eitt barn á biðlista er of mikið. 1.000 börn á biðlista er skelfing. Við verðum líka að tryggja að báðir foreldrar hafi jafnan rétt gagnvart börnum sínum. Það er grunnskilyrði. Við verðum að fara að breyta þessu kerfi.
Ég segi já við þessu máli í von um að það verði til bóta en það tekur tíma. Það segir sig sjálft að á meðan börn eru á biðlista í tvö, þrjú ár, á meðan það er ekki leyst og það er líka mönnunarvandi í því kerfi, þá á mikið eftir að gera. Ég vona heitt og innilega að innan nokkurra ára verði þetta komið í gagnið.