151. löggjafarþing — 112. fundur,  11. júní 2021.

raforkulög og stofnun Landsnets hf.

628. mál
[11:23]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þetta er viðamikið og tæknilega flókið mál á mikilvægu sviði. Málið kom seint fram og var ófullburða eins og álit meiri hluta ber glöggt vitni. Við Miðflokksmenn lögðum þess vegna til að því yrði vísað til ríkisstjórnarinnar með það að markmiði að vinna það betur. Í ljósi málatilbúnaðar verður þetta mál að vera á ábyrgð meiri hlutans. Þess vegna munum við Miðflokksmenn ekki greiða atkvæði.