151. löggjafarþing — 112. fundur, 11. júní 2021.
raforkulög og stofnun Landsnets hf.
628. mál
Hæstv. forseti. Uppbygging á afhendingaröryggi raforku hefur gengið á hraða snigilsins undanfarna áratugi. Afhendingaröryggi raforku er hluti af grundvallarinnviðaþjónustu landsmanna og þar hafa hinar dreifðu byggðir setið eftir, sérstaklega á Norðurlandi og Vestfjörðum. Ef þetta mál hefði verið lagt fram fyrr og unnið ítarlegar hefði meintur snigill náð heldur meiri hraða. Þess vegna sit ég hjá við þessa atkvæðagreiðslu.