151. löggjafarþing — 112. fundur,  11. júní 2021.

skýrsla um leghálsskimanir.

[12:03]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Hæstv. forseti. Ég er hingað komin til að taka undir það að það er með öllu ólíðandi að við séum ekki búin að fá þessa skýrslu. Það er líka annar hlutur sem ég hef séð hjá hópi kvenna á Facebook, þ.e. að ekki er hægt að taka fyrir þær kvartanir sem hafa borist umboðsmanni Alþingis meðan skýrslan er ekki komin fram. Þetta helst í hendur og eftir sitja konur í fullkominni óvissu.