skýrsla um leghálsskimanir.
Herra forseti. Ég tek undir með þeim sem hafa talað á undan mér. Það er auðvitað mjög brýnt að þessi skýrsla komi fram á meðan Alþingi er starfandi. Nú er hún búin að vera í prófarkalestri í tvo sólarhringa en innihald skýrslunnar er varðar heilbrigði kvenna skiptir svo miklu máli að ég er sannfærður um að bæði þingmenn og almenningur allur muni alveg sjá í gegnum fingur við ráðherra þó að slæðist inn einhverjar stafsetningarvillur — þannig að: Inn með skýrsluna.
Ég hef samt býsna góð tíðindi að færa, kæru þingmenn. Þegar ég var að labba upp í matsal áðan var hæstv. heilbrigðisráðherra í viðtali, við RÚV væntanlega, þar sem gengið var á hana um skýrsluna. Hún sagði að skýrslan kæmi í lok vikunnar. Þegar hún var þá spurð hvort hún kæmi í dag sagði hún: Líklega. Þannig að við skulum halda í vonina.