151. löggjafarþing — 112. fundur,  11. júní 2021.

skýrsla um leghálsskimanir.

[12:08]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég fór í það að kanna tímasetningar og dagsetningar. Ég lagði fram beiðni um skýrslu heilbrigðisráðherra 2. mars. Með mér á því máli voru 26 þingmenn og skýrslubeiðnin var vitaskuld samþykkt. Allan þennan tíma og löngu áður hafa konur verið í erfiðri og þungri óvissu um það hvaða áhrif þessar skipulagsbreytingar hafa hvað varðar heilsu þeirra, heilbrigði og jafnvel líf. Ég ítreka og hef nefnt það áður hér í fundarstjórn að þessi svör liggja fyrir í heilbrigðisráðuneytinu því að svörin snúast um forsendur heilbrigðisráðherra sjálfs. Hún þekkir svörin. Það hefði ekki þurft að taka 14 vikur að koma þessum upplýsingum til þingsins.