151. löggjafarþing — 112. fundur,  11. júní 2021.

þingsköp Alþingis.

850. mál
[12:19]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Eins og kunnugt er er sú fjármálaáætlun sem við gengum frá síðast í raun og veru nánast óbreytt frá þeirri næstu á undan. Ég sagði, og það kann vel að vera að hv. þingmaður sé ekki sammála því eða hafi ekki heyrt, að ég teldi það ábyrga afstöðu að ríkisstjórn væri ekki að boða ný og meiri háttar mál svo skömmu fyrir kosningar. Og það er nákvæmlega það sama og ég segi hér, mér fyndist hálfankannalegt að ríkisstjórn boðaði jafnvel ný og meiri háttar mál í fjárlögum tíu dögum fyrir kosningar þar sem ljóst er að það kunna að verða breytingar á ríkisstjórn eftir kosningar og ný ríkisstjórn þyrfti alltaf að leggja fram ný fjárlög. Ég tel það í raun og veru nokkuð marklaust að Alþingi komi saman til að ræða fjárlög sem væntanlega væru annaðhvort óbreytt miðað við fjármálaáætlun sem formsatriði eða þá nýtt sem einhvers konar loforð um einhverja framtíð korteri í kosningar. Ég tel hvorugt sérstaklega ábyrgt svo að ég sé algjörlega heiðarleg með það og þá erum við hv. þingmaður ósammála um það. Ég vil líka minna á að þetta ákvæði er algjörlega sambærilegt þeim ákvæðum sem áður hafa verið samþykkt á Alþingi í tengslum við kosningar á óvenjulegum tíma þannig að það er engin nýlunda sem hér er lögð til og hingað til höfum við almennt verið sammála um að okkur finnist betri bragur á því að gera hlutina svona.