151. löggjafarþing — 112. fundur,  11. júní 2021.

þingsköp Alþingis.

850. mál
[12:21]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Það er ekki verið að fela neitt. Við erum nýbúin að samþykkja fjármálaáætlun sem leggur grunninn að vinnunni fram undan. Síðan mun koma ný þjóðhagsspá. Hún mun leggja grunninn að fjárlagavinnunni fram undan. Hún er ekki leyndarmál. Það eru engin leyndarmál í þessu. Þetta snýst bara um hvað sé skynsamlegt vinnulag af hálfu Alþingis og ég tel þetta vera skynsamlegt vinnulag.