fasteignalán til neytenda.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir andsvarið. Í rauninni er bara verið að tala um val einstaklingsins um að losa sig undan verðtryggðu láni ef hann kýs svo. Við vitum náttúrlega að það hafa jafnvel verið rekin dómsmál þar sem látið er reyna á hvort það sé í raun og veru lögmætt að lánastofnanir geti beitt þessu breytilega vaxtafyrirkomulagi sínu „efter behag“ eins og hv. þingmaður bendir réttilega á. Það ætti í rauninni að vera lágmarkskrafa að við vitum hvað við erum að fara að gera þegar við tökum stærsta lánið á ævinni, sem lýtur að því að koma okkur þaki yfir höfuðið, þeir sem eru svo lánsamir að hafa kost á því. Það er því í mörg horn að líta. Ég tel að þetta sé eitraður kokteill í allar áttir, þessir breytilegu vextir sem enginn veit í rauninni hvert fara og hvert þróast því að þeir sveiflast bara með verðbólgunni eins og verðtryggingin. En það breytir ekki þeirri staðreynd að öðruvísi er farið með þau lán þegar kemur að greiðslum en t.d. verðtryggðu lánin sem setja í rauninni tímaásinn á lánið gjörsamlega „sky high“ og beint upp í loftið — fyrirgefðu, forseti, ég veit að þingmálið er íslenska en ég missti mig í þessu. Hvort heldur sem er þá tel ég þetta., hv. þingmaður, eitt skref í a.m.k. skárri átt miðað við þá fjárhagslegu yfirburði sem lánastofnanir og allir lánveitendur hafa alltaf yfir viðskiptavini sína og lántakendur. Betur má faktískt ef duga skal hjá okkur. Þetta væri gott fyrsta skref og svo höldum við bara áfram.