151. löggjafarþing — 112. fundur,  11. júní 2021.

fasteignalán til neytenda.

791. mál
[12:43]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Smára McCarthy fyrir andsvarið. Hvernig eigum við að losa okkur við óværuna sem verðtryggingin er? Eins og ég nefndi áðan er það kannski að síast inn með tímanum hvaða óskapnaður hún í rauninni er og, eins og hv. þingmaður talar um, eru líka fleiri að sækja í óverðtryggð lán. En eins og ég bendi á tekur þessi breytingartillaga meira utan um það að gefa öllum tækifæri til að losa sig við verðtryggðu lánin og fara yfir í óverðtryggð lán án þess að af því hljótist aukakostnaður, hærri greiðslubyrði eða eitthvað slíkt. Staðreyndin er sú að verðtryggðu lánin hafa lægri greiðslubyrði þannig að í þau sækir tekjulægra fólk. Hvað eigum við að gera til að losa okkur undan þessu? Það er einfaldlega að setja sambærilegar reglur og við gerðum þegar verðtryggingunni var komið á með einu pennastriki. Hið ágæta Alþingi Íslendinga, löggjafinn, þarf bara að losa okkur við hana, það er ekki flóknara það. Það má byrja á því að samþykkja fyrsta skrefið í þá átt, frumvarp Flokks fólksins sem kveður á um að afnema verðtryggingu á neytendalán. Við kölluðum það Covid-mál og reyndum í rauninni að nýta það þegar allar forsendur voru fyrir því hér og öll rauð flögg á lofti varðandi það að hér yrði verðbólguskot í kjölfarið á þessum heimsfaraldri og staðreyndin varð jú sú. Þvert á það sem hæstv. fjármálaráðherra og fleiri vilja halda fram um að verðbólgan sé á niðurleið þá mældist hún í síðasta mánuði sennilega hátt í 6% á mánaðargrundvelli. Við vorum einmitt oft að tala um að hún væri 4,3%, 4,6% á hálfs árs grunni eða eins árs grunni en þegar við tökum hana út á mánaðargrundvelli hefur hún verið hátt í 6%. Þannig að betur má ef duga skal (Forseti hringir.) og þeir sem bera verðtrygginguna fá virkilega að finna fyrir því (Forseti hringir.) hvernig lánin þeirra hækka algerlega upp úr öllu valdi.