um fundarstjórn.
Herra forseti. Loksins er hin langþráða skýrsla heilbrigðisráðherra um breytingar á skipulagi og framkvæmd skimunar fyrir krabbameini komin í hús. Það tók fjóra daga frá því að ráðuneytið sendi hana í prófarkalestur að birta hana. Mig langar að benda á þetta sérstaklega vegna þess að hún er átta síður, tók fjóra daga að prófarkalesa til að skjalið gæti litið dagsins ljós hér á þingi. En hún kom fyrir þinglok og ég vænti þess, virðulegur forseti, að reynt verði til þrautar að fá ráðherra til að mæta í þingsal og gera grein fyrir efni skýrslunnar.